Pressan

Barni bjargað úr kynlífsmansali á Tenerife

Mynd
Mynd: Policia Nacional

Þrír menn hafa verið handteknir á Tenerife í kjölfar rannsóknar lögreglu á meintri misnotkun á stúlku undir lögaldri sem grunur leikur á að hafa verið gerð út vændi. Stúlkunni var bjargað úr klóm meintra mansalsdólga í aðgerðinni. 

Canarian Weekly greinir frá. 

Rannsóknin var unnin af sérsveit þjóðlögreglunnar sem sérhæfir sig í að rannsaka mansal og skipulagða glæpastarfsemi tengda innflytjendamálum og fölsuðum skilríkjum. Hún hófst í maí eftir að lögreglu bárust upplýsingar um að ólögráða einstaklingur hefði verið beittur kynferðislegri misnotkun á árunum 2022 til 2024.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar var fórnarlambið neytt til vændis á tveimur stöðum sem litu út fyrir að vera lögmæt fyrirtæki. Lögreglan telur hins vegar að þar hafi í raun farið fram skipulögð kynferðisleg misnotkun á konum. Framburður fórnarlamba og starfsmanna bendir til þess að sumar konurnar, einkum þær sem voru í viðkvæmri stöðu, hafi sætt stöðugu eftirliti og ströngum reglum. Þær hafi þurft að vinna samkvæmt föstum vinnutíma og fylgja húsreglum, en brot gegn þeim hafi varðað fjársektum eða öðrum refsiaðgerðum.

Að fengnum dómsúrskurði framkvæmdi lögreglan húsleit á báðum stöðunum og handtók mennina þrjá. Þeir eru grunaðir um kynferðislega misnotkun, vændistengd brot og brot sem varða afvegaleiðingu ólögráða einstaklings.