Pressan

Fæddi níu vikum fyrir tímann til að byrja krabbameinsmeðferð

Mynd

Verðandi móðir neyddist til að fæða níu vikum fyrir tímann eftir að hafa fengið óvænta greiningu.

Amy Carroll, 34 ára, var á sinni fjórðu meðgöngu og hafði fengið meðgöngusykursýki greinda í upphafi. Þegar hún fór að finna fyrir yfirliðsköstum taldi hún einkennin tlheyra meðgöngusykursýkinni. En ástandið versnaði þegar Amy fékk flogakast á meðan hún lá í rúminu við hlið maka síns, Torrin Sirus, snemma morguns 17. júní.

Amy, sem búsett er í Northamptonshire í Bretlandi, var flutt á sjúkrahús þar sem hún gekkst undir segulómun og sneiðmyndatöku næstu tvo daga.

Rannsóknir staðfestu að Amy var með sjö æxli í heilanum og hún greindist með fjórða stigs heilakrabbamein og læknar sögðu að þetta væri afleiðing af því að hún hafði áður fengið brjóstakrabbamein árið 2021, sem hún sigraði.

Vegna þess hve brýn meðferð við krabbameininu var þurfti Amy að gangast undir bráðakeisaraskurð rétt innan við 31 viku og sonur hennar, Arlo Atlas Sirus, fæddist aðeins 2 kíló en honum vegnaði vel miðað við þyngd hans.

Amy segir að hún henni sé létt að „kraftaverkið“ Arlo sé fæddur og segir: „Þessi meðganga bjargaði lífi mínu því ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég væri veik.“

„Eftir brjóstakrabbameinsmeðferðina var mér sagt að ég gæti aldrei eignast börn svo þetta barn er kraftaverk. Í byrjun meðgöngunnar fór mér að líða illa og ég fékk greiningu um meðgöngusykursýki í fyrsta skipti. Mér var svolítið flökurt og fékk svimaköst en hélt að þetta væri aukaverkun sykursýkinnar.“

Mynd

Amy lýsti því hvernig hún man ekki eftir að hafa verið flutt á sjúkrahús eftir flogakastið.

Nú bíður móðirin eftir að hefja fyrstu lotu krabbameinsmeðferðarinnar og er áhyggjufull um að hún muni ekki geta haldið á syni sínum.

„Þegar ég byrja í meðferðinni mun ég ekki geta verið með barninu allan tímann sem mun brjóta mig niður, ég verð að sjá hvernig mér líður eftir hverja meðferð,“ sagði hún.

„Þegar ég fæ krabbameinslyfjameðferð get ég alls ekki snert hann, sem verður svo erfitt.“

Mynd

Hún útskýrði að henni hefði ekki verið leyft að snerta börnin sín þegar hún hafði áður farið í krabbameinslyfjameðferð.

„Ég var svo þreytt og úrvinda eftir þetta, og ég veit að ég verð það aftur í þetta skiptið,“ sagði hún. „Læknarnir hafa ekki sagt mér hvaða tegund krabbameinslyfjameðferðar ég fæ ennþá, þar sem þeir eru fyrst að framkvæma geislameðferðina og endurmeta síðan meðferðaráætlunina.“

Amy á að hefja sína fyrstu geislameðferð 15. júlí en sagði að litli sonur hennar hjálpi henni að beina huganum frá veikindunum.

„Hann er svo sætur, alltaf þegar ég sé Arlo hverfa allar áhyggjurnar, ég gleymi að ég hef farið í keisaraskurð og að ég er með æxlin“.