Hin 14 ára gamla Kaydin Baldwin fékk flensuna. Þetta var þó engin venjuleg flensa sem hún hristi af sér eins og fólk gerir yfirleitt árlega. Unga stúlkan endaði lífshættulega veik á sjúkrahúsi þar sem hún þurfti að dvelja í rúmlega 100 daga og er í dag þremur útlimum fátækari.
Flensan þróaðist yfir í lungnabólgu vegna streptókokka og svo yfir í drep í lungnavef. Um er að ræða sjaldgæfan en lífshættulegan fylgikvilla lungnabólgu sem veldur miklum skaða á lungnum og drepi í vefjum.
Að sögn móður Kaydin, Amöndu, fór stúlkan að finna fyrir einkennum veikindanna þann 23. janúar. Hún fékk hita, hroll og beinverki. Síðan hrakaði ástandi stúlkunnar hratt og endaði hún með blóðtappa, sýklasótt og fjöllíffærabilun.
Eina leiðin sem læknar höfðu til að bjarga lífi stúlkunnar var að fjarlægja báða fætur og annan handlegg hennar. Sú aðgerð fór fram þann 17. mars.
Stúlkan er nú í endurhæfingu og fagnaði nýlega 14 ára afmæli sínu. Fjölskylda hennar stendur nú fyrir söfnun á GoFundMe til að aðlaga heimilið að breyttum þörfum stúlkunnar sem notast nú við hjólastól.