Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skilið eftir leiðbeiningar hvernig bregðast eigi við ef Íranir ráða hann af dögum, ef svo fer verða viðbrögðin geigvænleg.
„Ég er búinn að vera lengi á listanum þeirra. Þetta er það sem við erum að glíma við,“ sagði Trump í viðtali við New York Post. „Ég er búinn að skilja eftir leiðbeiningar – svona ef eitthvað gerst, það er bara að sprengja þá meira en þeir hafa nokkru sinni séð.“
Líkt og greint var frá í vikunni er vopnahléi Bandaríkjanna og Íran lokið, sagði Trump að það væri tímasóun að ræða meira við þá.
Var hann spurður út í fréttir um að leyniþjónusta Ísraels hafi komist á snoðir um áætlun um að ráða hann af dögum. Trump sagði það ekkert nýtt, Íranir hafi árum saman viljað drepa sig. Það hafi kristallast árið 2020 þegar Trump lét drepa hershöfðingjann Qasem Soleimani.
„Nei nei, Ísraelarnir komu ekki með neitt. Nei nei. Ég hef verið númer eitt hjá þeim lengi, þannig er lífið.,“ sagði Trump.
Trump skipti um flugvélar á leiðinni til Ankara í Tyrklandi á fund Atlantshafsbandalagsins, þar sem hann tók meðal annars í höndina á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, var það gert til að tryggja öryggi hans á leiðinni.