Pressan

Skar undan sér kynfærin og notaði þau svo til íkveikju

Mynd

Bandaríkjamaðurinn Christopher Peden hefur verið ákærður fyrir íkveikju sem hann framkvæmdi með heldur óvenjulegum hætti í bænum Fort Wayne í Indiana.

Peden skar undan sér kynfærin, hellti svo eldsneyti yfir afskorinn liminn og notaði til að kveikja bál í bílskúr nágrannans. Hann yfirgaf svo vettvang en rakst þá óheppilega á lögreglumenn. Reyndi hann að telja lögreglumönnum trú um að hann hefði orðið fyrir stunguárás en eftir að á sjúkrahúsið var komið gekkst hann við því að hafa kveikt í bílskúrnum með sínum eigin afskornu kynfærum.

Frá þessu greinir New York Post.