Pressan

Nemi nauðlenti eftir að flugkennari stökk til bana í miðju flugi

Mynd
Leandro Bertazzo

Flugnemi hefur tjáð sig eftir að flugkennari hans stökk út um glugga og lést í miðjum flugtíma.

Tuttugu og tveggja ára neminn, Rosario, var hálfnaður með kennslustundina þegar flugkennarinn, Leandro Bertazzo, 42 ára, opnaði gluggann gluggann á Cessna C150 flugvél sinni á leið yfir Toledo í Argentínu þann 4. júlí.

Nemandinn sagðist hafa horft á Bertazzo stökkva til dauða síns. Í ringulreiðinni og ruglinu sem fylgdi atburðinum hélt hún fyrst að Bertazzo gæti verið með fallhlíf. Hún áttaði sig fljótt á því að svo var ekki.

Nemandinn tilkynnti  atvikið rólega til viðeigandi yfirvalda áður en hún lenti vélinni sjálf á Coronel Olmedo flugvellinum í Cordoba, þrátt fyrir mjög takmarkaða reynslu hennar af því að fljúga ein.

Neyðarlínan greindi frá því að lík Bertazzo hefði fundist á akri 20 mínútum síðar.

Mynd
Flugvélin.

Eduardo Alvarez, forstöðumaður flugskólans Flying Parrot Cordoba þar sem Bertazzo starfaði sem þjálfari, sagði sína útgáfu af atburðarásinni fyrir argentínskum fjölmiðlum.

Hann útskýrði að nemandinn hefði sagt honum að Bertazzo hefði „hoppað“ og bætti við: „Hún sagði að hann hefði tekið af sér heyrnartólin, komið fyrir eigum sínum, þar á meðal farsímanum, tekið af sér öryggisbeltið, opnað hurðina sem er mjög erfitt að opna og hoppað út. Hún sendi skilaboð um aðstæður og hélt síðan aftur út á flugbrautina til að lenda,“ bætti hann við og sagði að nemandinn, sem hafði flugmannsskírteini en fáar flugstundir að baki, hefði verið „mjög skýr, ákveðin, þroskuð og fagmannleg“. Hún var mjög skelfd en af ​​fullri fagmennsku flaug hún vélinni á flugvöllinn og lenti fullkomlega,“ bætti hann við.

Mynd
Atvikið átti sér stað í flugskólanum Flying Parrot Cordoba.

Hver voru síðustu orð Bertazzo?

Fjölmiðlar hafa greint frá því að síðustu orð Bertazzo hafi verið „Þú veist hvað þú átt að gera, haltu áfram,“ áður en hann kastaði sér út um gluggann.

Eduardo Alvarez bætti við að þetta væri mjög átakanlegt og lýsti Bertazzo sem glaðlyndum manni sem væri „alltaf brosandi“. Hann tók þessa hörmulegu ákvörðun um borð í flugvél með manneskju sér við hlið,“ sagði hann. „Það er engin leið að hugsa um það eða skilja það, en mannshugurinn er svo flókinn. Þess vegna gerðist það sem gerðist.“

Argentínska lögreglan og viðbragðsaðilar rannsaka nú atvikið.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.