Pressan

Leynd yfir heilsufari öldungadeildarþingmannsins ýtir undir samsæriskenningar - „Er McConnell heiladauður?“

Mynd
Mitch McConnell. Mynd:EPA-EFE/SHAWN THEW

Hvernig heilsast öldungadeildarþingmanninum Mitch McConnell? Þetta er spurningin sem brennur á mörgum Bandaríkjamönnum í dag. Þingmaðurinn lagðist inn á sjúkrahús um miðjan júní en skrifstofa hans hefur neitað að gefa upp hvers vegna. Leyndin sem virðist hvíla yfir heilsufari McConnells hefur valdið því að samsæriskenningar eru farnar á kreik. Samkvæmt þessum kenningum liggur þingmaðurinn við dauðans dyr en félagar hans í Repúblikanaflokknum hafa ákveðið að halda því leyndu til að halda þingsæti McConnells öruggu.

Hafa nú repúblikanar reynt að kveða þessar samsæriskenningar niður. Má sem dæmi nefna að þingmaðurinn John Thune, sem tók við af McConnell sem leiðtogi meirihlutans í öldungadeildinni, hefur lýst því yfir að hann hafi rætt við McConnell símleiðis á mánudaginn. Talsmaður Thune sagði í yfirlýsingu til fjölmiðla: „Þeir áttu langt og innihaldsríkt samtal þar sem farið var yfir víðan völl, sem sem um þjóðaröryggi.

Öldungadeildarþingmaðurinn John Barrasso segist einnig hafa spjallað við McConnell í símtali á þriðjudaginn en þar mun McConnell hafa sagst spenntur að snúa aftur á þingið.

Ekki eru allir sannfærðir um að McConnell sé hraustur. Ríkisstjóri Kentucky hefur krafið skrifstofu öldungadeildarþingmannsins um gagnsæi hvað varðar veikindin. Repúblikanar eru með nauman meirihluta í öldungadeildinni, eða 53 sæti gegn 47 sætum minnihlutans.

Hafa þó nokkrir farið fram á að sönnun þess að McConnel sé enn á lífi. Íhaldssami samfélagsrýnirinn Glenn Beck skrifar á X að það sé óásættanlegt að Repúblikanaflokkurinn, sem árum saman gagnrýndi heilsufar Joe Biden þegar sá gegndi embætti forseta, sé að halda heilsufari öldungadeildarþingmanns leyndu.

„Er McConnell heiladauður?“ spyr Beck sem segir það rétt kjósenda að vera upplýstir um stöðuna.

McConnell stefnir á að fara á eftirlaun í janúar og ætlar ekki að bjóða sig aftur fram til öldungadeildarinnar. Ef hann lætur lífið fyrir 3. ágúst þarf að boða til sérstakra kosninga um þingsæti hans, láti hann lífið eftir þá dagsetningu þá kemur ekki til slíkra kosninga. Þó svo að skrifstofa öldungadeildarþingmannsins hafi ekki gefið upp hvers vegna hann var lagður inn á sjúkrahús hefur NBC-fréttastofan greint frá því að sjúkrabíll hafi verið sendur að heimili hans í júní vegna hjartaáfalls. Þar hafi viðbragðsaðilar þurft að beita endurlífgun. McConnell er 84 ára gamall og var fyrst kjörinn á þing árið 1984.

Aðspurður um stöðuna á McConnell í gær sagðist Donald Trump Bandaríkjaforseti ekki hafa nokkra hugmynd. Hann hafi ekki rætt við öldungadeildarþingmanninn síðan hann var lagður inn á sjúkrahúsið í júní.

„Ég hef ekki hugmynd um hvernig honum gengur,“ sagði forsetinn.

Upplýst var um að McConnell væri kominn á sjúkrahús þann 14. júní og hefur hann því dvalið á sjúkrahúsinu í tæpan mánuð. Scott Jennings, sem áður starfaði sem aðstoðarmaður McConnells, mætti til CNN til að ræða málin í gær. Jennings sagðist hafa rætt við McConnell skömmu fyrir viðtalið en fór undan í flæmingi þegar þáttastjórnendur spurðu hvort hann gæti hringt í McConnell í útsendingunni.

„Gætum við náð honum í símann núna?“ spurði þáttastjórnandi. Jennings bara hló og skipti um umræðuefni.

 

 

MAGA-áhrifavaldurinn Laura Loomer telur að brögð séu í tafli. McConnell sé heiladauður en því sé haldið leyndu til að reyna að ná höggi á Trump og koma í veg fyrir breytingar á kosningalögum, frumvarp sem kallast Save America Act. 

„Hann er grænmeti. Lögfestið Save America Act. Ekki leyfa þjóð okkar að deyja með Mitch McConnell.“

 

 Eftir að Jennings og fleiri stigu fram og sögðust hafa rætt við öldungardeildaþingmanninn símleiðis hafa margir brugðið á leik á samfélagsmiðlum og komið með sínar eigin útgáfur af meintum símtölum við McConnell.