Summer Robert segir farir sínar ekki sléttar af stefnumótamarkaðnum þar sem allir karlmenn sem hún kynnist vilja einungis ræða við hana um brjóstin hennar. Robert, sem starfar sem fyrirsæta á OnlyFans, er með heilkenni sem veldur óvenjustórum brjóstum. Er hún í brjóstastærð 30R.
Robert, sem er tæplega þrítug, hefur þénað vel á brjóstastærðinni á OnlyFans en þegar kemur að ástarmálunum þá segir hún í viðtali við Daily Star að brjóstin séu fyrir henni. Karlmenn sem hún eigi í samskiptum við eigi erfitt með að horfa framhjá brjóstunum hennar og lætur það henni líða illa, hún sé hlutgerð og laði að sér menn með blæti fyrir stórum brjóstum.
Þetta sé jafnvel áður en þau hittist og komi fram í spjalli á stefnumótaforritum. „Þeir eru alltaf að senda mér spurningar hvort mér sé ekki illt í bakinu eða hreinlega „Guð minn góður hvað tútturnar þínar eru stórar“. Ég bara spyr, viljið þið ekkert kynnast mér?,“ segir Robert. „Svona er þetta. Nánast hvert einasta spjall.“
Hún segist aldrei vera spurð út í persónuleikann, áhugamál eða hvað hún sé að gera í lífinu, spurningarnar snúast bara um brjóstin. „Ég var að tala við svo indælan mann, svo allt í einu spurði hann hvort hann mætti ekki fara með mig heim og stinga honum á milli brjóstanna á mér,“ segir hún. „Í alvöru. Þetta er óþolandi.“
Jafnvel þegar hún nær að tala við einhvern nógu lengi til að fara á stefnumót þá eru þau fljót að taka á sig kynferðislegan blæ. „Þetta er aldrei rómantískt. Þeir vilja alltaf bara fá að koma, gera það og fara,“ segir hún. „Mér er aldrei boðið út að borða. Ekki það að ég sé sérstaklega að leita að því það er bara leiðinlegt að vera aldrei boðið.“
Þá segist hún reglulega lenda á mönnum með blæti. „Ég er að tala við strák og svo kíki ég hverjum hann er að fylgja og þá eru það bara gellur með stór brjóst. Já, ég er þá bara blætið þitt.“
Hennar draumur er að gifta sig, eignast barn og helst búa í sveit. „Eftir tvö ár langar mig að vera gift kona. Mig langar svo mikið til að vera eiginkona, þetta er bara svo erfitt!“