Pressan

Hver er stjórnmálamaðurinn Count Binface í raun og veru og gæti hann sigraði Nigel Farage?

Mynd
Mynd/Getty

Breski þingmaðurinn Nigel Farage, sem janframt er leiðtogi breska umbótaflokksins, Reform, hefur sagt af sér þingmennsku. Sökum þessa verður boðað til sérstakra kosninga í kjördæmi Farage í Clacton. 

Afsögninga má rekja til uppljóstrana um gjafir sem Farage hefur þegið frá auðkýfingum, en sumir telja að Farage hafi ákveðið að segja af sér og sækjast svo eftir endurkjörí í sérstöku kosningunum til að endurnýja umboð skitt hjá kjósendum og til að losna undan rannsóknum á gjafagjörningunum. 

Bæði breski íhakldsflokkurinn sem og verkamannaflokkurinn hafa nú þegar tilkynnt að þeir muni ekki taka þátt í sérstöku kosningunum og virðist allt stefna í að eini mótframbjóðandi Farage verði Count Binface, grínisti sem gengur um með öskutunnu á hausnum. 

Sjá einnig: Björn segir tilraun Farage misheppnaða - stefnir í að hann mæti Count Binface

En hver er þessi Count Binface? 

Maðurinn á bak við öskutunnuna heitir Jonathan David Harvey, en hann er breskur grínisti, handritshöfundur og framleiðandi sem hefur starfað við nokkra þekkta sjónvarpsþætti á undanförnum áratugum, svo sem The Thick Of It, Have I Got News For You, Tonight With John Oliver og Yes Minister. Úvarpsþættir sem hann hefur haldið úti með Rob Newman hjá Radio 4 hafa unnið til verðlauna og grínmyndbönd sem Harvey hefur birt á netinu hafa fengið rúmlega 70 milljónir í áhorf. 

Persónan Count Binface lýsir sér sem sjálfstæðum geimbardagamanni og hefur boðið sig fram með reglulegum hætti í kosningum í Bretlandi undanfarin ár. Harvey segist hafa búið til persónuna til að hvetja fólk tli að nýta kosningarétt sinn. 

Kosningaloforð hans eru gjarnan í léttari kantinum og minna stundum á loforð Besta flokksins þegar hann hét og var í Reykjavík. 

  • Þegar breski íhaldsflokkurinn lofaði að fjölga lögrelgumönnum um 20 þúsund lofaði Count Binface að fjölga þeim um 20.001. 
  • Count Binface lofaði að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda ætti aðra þjóðaratkvæðasgreiðslu um aðild að Evrópusambandinu. 
  • Hann hét því að þjóðnýta söngkonuna Adele. 
  • Hann hét því að færa handþurrkarann  á Crown and Treaty kránni í Uxbridge á „skynsamlegri stað“
  • Hann vildi endurvekja textavarpið Ceefax. 
  • Hann lofaði að leggja niður lávarðadeildina. 
  • Hann vildi stöðva vopnasölu til kúgunarstjórna. 
  • Hann vildi gera fjölmiðlamanninn Piers Morgan kolefnishlutlausan fyrir árið 2030. 

Stundum hefur það komið fyrir að fólk, og jafnvel blaðamenn, afskrifi Count Binface sem einhvers konar rugludall. Harvey er þó enginn rugludallur heldur grínist sem kann vel að koma fyrir sig orði eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem vakti töluverða athygli: 

 

Gæti hann sigrað Farage?

Count Binface telur sjálfur ólíklegt að hann nái að sigra Farage í Clacton, en kjördæmið virðist almennt mjög hrifið af stefnu Reform. Stór hluti kjósenda er efnaminni eldri borgarar sem var einmitt ástæðan fyrir því að Farage ákvað að bjóða sig þar fram þrátt fyrir að hafa engin sérstök tengsl við kjördæmið sjálft.

Aðspurður um möguleika sína sagði Binface: „Líklega [vinn ég] ekki, en þú veist, það er mitt hlutverk að fagna og verja undurverkið sem breska lýðræðið er.“

Hann veltir fyrir sér hvers vegna stóru flokkarnir ætli ekki að bjóða fram. Er það sökum þess að þeir óttast Count Binface, eða telja flokkarnir að Nigel Farage sé að efna til pólitísks sjónarspils?

Alex Morales hjá Bloomberg telur ljóst að um pólitískt útspil sé að ræða en þarna sé Farage þó að taka mikla áhættu. Hann hlaut 46 prósent atkvæða í Clacton árið 2024 en á sama tíma sé hann umdeildur stjórnmálamaður. Mögulega hafi hluti kjósenda kosið hann síðast til að mótmæla ríkjandi kerfi. Þegar enginn annar flokkur stendur gegn Farage þá gæti það farið svo að hann verði álitinn kerfið á meðan Count Binface stæði fyrir fólkið.

Bendir Morales á að Bretar hafi áður valið furðulega valkosti í kosningum, svo sem þegar rannsóknarskip hlaut nafnið Boaty McBoatface eða þegar Stuart Drummond var kjörinn borgarstjóri í Hartlepool, en hann bauð sig fram í gervi apans H'Angusar sem er lukkudýr knattspyrnusliðs á svæðinu. Rétt er að geta þess að Drummond þótti svo standa sig prýðilega í embættinu og var hann endurkjörinn í tvígang. 

Sem stendur telja veðbankar allt að 25 prósent líkur á að Binface sigri kosningarnar, enda hefur enginn grínframbjóðandi sigrað þingkosningar í Bretlandi til þessa. Samkvæmt reglum fyrir breska þingmenn fengi Binface ekki að klæðast öskutunnu í þingsalnum svo líklega væru kjósendur að fá grínistann Jon Harvey frekar en geimgreifann á þingið. 

Allt bendir til þess að pólitískur leikur Nigels muni fara þannig að hann þurfi að eyða sumrinu í að rífast við öskutunnu, sem er líklega ekki það sem hann hafði í huga þegar hann sagði af sér.  Hann ætlaði að losna undan þungum ásökunum um að hafa þegið gífurlegar fjárhæðir að gjöf frá auðkýfingum án þess að gefa það upp í samræmi við reglur sem gilda fyrir kjörna fulltrúa. Hann vildi leggja málið í hendur kjósenda, í kjördæmi þar sem hann veit vel að hann er vel liðinn. New York Times segir að fáeinum tímum eftir afsögnina hafi þetta klóka útspil Farage orðið að farsa. 

„Þessi mikli pólitíski umrótari Bretlands gæti komist að því að baráttan við „valdaelítuna“ sem hann var að vonast eftir verði háð gegn Binface greifa.“ 

Binface var spurður hvað hann hefði fram að færa fyrir kjósendur í Clacton og svar hans var einfalt:

„Ég er ekki Nigel Farage.“