Pressan

Uppnám á flugvellinum í Tenerife – Farþegavél rýmd vegna sprengjuhótunar

Mynd
Frá Tenerife.

Flugi Eurowings Discover frá Tenerife Sur flugvellinum til Frankfurt seinkaði um tæplega þrjár klukkustundir síðastliðinn laugardag, eftir að hótun um að sprengja væri í vélinni barst skömmu fyrir flugtak. 

Vélin hafði þegar farið í gegnum flughliðið og var á leið að flugbraut þegar flugumferðarstjórn fyrirskipaði áhöfninni að snúa við og fara aftur að flugstöðinni vegna hótunarinnar.

Farþegum var skipað frá borði með handfarangur sinn á meðan öryggsissveitir leituðu gaumgæfilega í vélinni. Jafnframt var allur innritaður farangur tekinn úr lest vélarinnar og rannsakaður með sérhæfðum skönnunarbúnaði og sprengjuleitarhundum samkvæmt öryggisferlum spænskra flugvallaryfirvalda.

Ítarleg rannsókn leiddi í ljós að um gabb var að ræða og engin fannst sprengjan. Farþegar fengu því að fara aftur um borð og flugvélin lagði af stað til Frankfurt um kl. 19.30, tæpum þremur klukkustundum síðar en áætlað hafði verið.

Sprengjuhótanir eru sjaldgæfar á Tenerife en öllum slíkum tilkynningum er tekið af fyllstu alvöru allt þar til staðfest hefur verið að engin hætta sér fyrir hendi.

Sjá nánar um málið á Canarian Weekly