Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins í Bretlandi (e. reform) hefur sagt af sér þingmennsku í neðri deild breska þingsins, en afsögnina má rekja til uppljóstrana um gjafir sem þingmaðurinn þáði frá auðkýfingum. Farage er þó ekki alfarið af baki dottinn. Vegna afsagnarinnar verður gengið til sérstakra kosninga í kjördæmi hans og ætlar Farage að endurnýja umboð sitt með því að bjóða sig aftur fram.
Breskir miðlar hafa fjallað mikið um gjafir sem Farage hefur þegið frá auðkýfingum, þar á meðal um 5 milljóna punda gjöf sem hann fékk frá auðkýfingnum Christopher Harhorne. Farage telur sig þó ekki hafa brotið lög og segir að gjöfinni hafi aðeins verið ætlað að fjármagna persónulega öryggisgæslu hans til æviloka. Eins hefur hann þegið gjöf frá rafmyntakónginum George Cottrell, sem var dæmdur fyrir fjársvik í Bandaríkjunum árið 2017.
Farage treystir því að fá þingsæti sitt aftur í sérstöku kosningunum í kjördæmi hans í Calcton og þar með muni kjósendur hafa lýst yfir trausti til hans.
„Ég hef ákveðið að fólkið í Clacton eigi að fá að dæma gjörðir mínar,“ sagði Farage í yfirlýsingu sinni vegna afsagnarinnar.
Sjá einnig: Er Nigel Farage búinn að vera?