Pressan

Ný rannsókn bendir til að þetta sé aldurinn þar sem heilinn er upp á sitt besta

Mynd

Margir gera ráð fyrir því að við náum hátindi lífsins í kringum þrítugt þegar heilinn er í sínu besta formi. Eftir það liggi leiðin bara niður á við. En er það virkilega svo? Nýleg rannsókn sem greint er frá í vísindaritinu Intelligence bendir til þess að þvert á það sem margir halda þá liggi leiðin áfram upp eftir þrítugt, út fertugsaldurinn og allt fram á sextugsaldur þegar heilinn nær hátindi sínum þegar við erum á bilinu 55–60 ára.

Rannsóknin bendir á að svokölluð fljótandi greind, hæfnin til rökrænnar hugsunar og skapandi lausna án þess að nýta eldri þekkingu og reynslu, nái hámarki um tvítugt og minnki svo með aldrinum. Þessi þáttur greindar er gjarnan talinn mikilvægasti vitsmunalegi þátturinn til að spá fyrir um horfur fólks í lífinu. Þrátt fyrir þetta sé það svo að árangur og velgengni í starfi nái hámarki mun síðar, eða á aldrinum 55–60 ára.

Það er teymi vísindamanna frá háskólanum í Vestur-Ástralíu sem stendur á bak við rannsóknina en þeir komust að þeirri niðurstöðu að jafnvel þó að úrvinnsluhraði og vinnsluminni heilans minnki frá og með tvítugsaldri þá batna sumir hæfileikar að sama bragði. Þetta eru hæfileikar á borð við orðaforða, fjármálalæsi, tilfinningagreind, samviskusemi og tilfinningalegan stöðugleika. Þegar allir þessir eiginleikar voru metnir saman var niðurstaðan sú að sálfræðileg virkni nær hámarki á aldrinum 55-60 ára. Þar með sé fólk líklega í bestu stöðunni til að taka mikilvægar ákvarðanir þegar það er orðið hressilega miðaldra. Rannsakendur gefa í skyn að einstaklingar í stöðum sem krefjast mikillar dómgreindar, svo sem stjórnmálamenn, stjórnendur, dómarar og aðrir — séu ekki upp á sitt besta fyrir fertugt og eftir 65 ára aldur. Þarna gildi reglan um hinn gullna meðalveg, eða hinn gullna miðaldra einstakling.

Þrátt fyrir að rúmmál heilans byrji að minnka snemma á fertugsaldri bæta aðrir þættir þroska og greindar hrörnunina upp. Fljótandi greindin nær hámarki og minnkar svo eftir tvítugt en svokölluð kristölluð greind, hæfnin til að nýta alla þekkingu sína og reynslu við að leysa viðfangsefni, ásamt tilfinningagreindinni og fleiru, eykst allt fram á miðjan aldur.

DailyMail fjallar um rannsóknina.