Þegar Debbie, 59 ára, bókaði sína ferð með skemmtiferðaskipi var hún taugaóstyrk. Hún var nýskilin og tilbúin fyrir eitthvað nýtt, en óttaðist að það að ferðast ein myndi hafa öfug áhrif og hún yrði einmana.
„Frá þeirri stundu sem ég bókaði skemmtiferðaskipið og þar til ég steig um borð í skipið var ég á taugum,“ segir Debbie í viðtali við Jam Press . „Allir voru að segja mér að ég myndi hitta fólk og eignast vini, en ég var svo stressuð. Ég hafði áhyggjur af hvað ég myndi gera ef eitthvað færi úrskeiðis og ég yrði ein við hvern myndi ég tala?“
Það var ekki fyrr en hún hitti tvo aðra ferðamenn í sömu aðstæðum og hún að Debbie áttaði sig á því að þessi ferð myndi breyta lífi hennar. Í rútunni á leið í skipiðl hitti hún Cath, 66 ára ekkju frá Aberdeenshire í Skotlandi, sem var örvæntingarfull að endurbyggja líf sitt eftir missi eiginmanns síns og sonar.
„Þegar ég hitti Cath náðum við strax vel saman,“ segir Debbie. „Hvorug okkar vissi hvað við vorum að gera, þetta var svona haltur leiðir blindan, en við vorum svo fegnar þegar við hittumst.“
„Rútan var full og það voru bara tvö sæti,“ bætti Cath við. „Debbie settist við hliðina á mér og þar með var það slegið, vinátta okkar var hafin.“
Stöllurnar hitti síðan Donnu, 58 ára, sem hafði bókað ferðina eftir að börnin hennar fluttu að heiman og hún átti engan annan sem var til í að fara með henni í frí.
„Ég heyrði Debbie í móttökunni spyrja um að bóka sig á hitting fyrir þá sem voru einis, svo ég hrópaði: „Ég er líka hérna ein,“ og þar með var það slegið,“ sagði Donna.
Frá þeim tímapunkti vorum við þrjár eins og límdar saman. „Við höfum sama húmorinn. Við köllum okkur Nornirnar í Eastwick af því að við erum alltaf að hlæja,“ bætti Donna við.
Eftir að hafa skapað ógleymanlegar minningar saman skiptist þríeykið á símanúmerum til að halda sambandi.
„Það geta liðið mánuðir án þess að við tölum saman en svo hringjum við og klukkutíma síðar erum við enn að hlæja. Við tökum upp þráðinn nákvæmlega þar sem frá var horfið,“ segir Donna.
Og Donna fann ekki aðeins tvo nýja bestu vini í fríinu sínu, heldur fann hún líka ástina.
„Ég var ekki að leita að neinu en ég hitti karlmann sem var líka að gerðast einn og við smullum bara saman,“ segir hún um manninn sinn, Alan, 61 árs, sem hún hefur þegar farið í tvær skemmtisiglingar með.
Og auðvitað fékk nýi kærastinn hennar Donnu samþykki bestu vinkvenna hennar: „Cath og Debbie eru sammála. Maður veit aldrei hvað getur gerst, svo taktu stökkið!“