Vladímír Pútín vill lifa að eilífu og það er ekki ódýrt. Hann hefur sett sem svarar til um 3.400 milljörðum íslenskra króna í eitt metnaðarfyllsta rannsóknarverkefni rússneskra vísindamanna fyrr og síðar. Markmiðið með verkefninu er að lengja líf fólks og þá sérstaklega Pútíns.
Wall Street Journal skýrir frá þessu og segir að rússneskir vísindamenn vinni að þróun lyfja sem geti stöðvað öldrunarferli líkamans. Þrívíddarprenta lifandi vef og rækta líffæri í fólk í smágrísum sem hefur verið erfðabreytt.
Marija Vorontsova, elsta dóttir Pútíns, stýrir verkefninu ásamt eðlisfræðingnum Mikhail Kovaltsjuk sem er talinn einn nánasti samstarfsmaður Pútíns. Ef sérfræðingar í rússneskum málefnum eru spurðir þá segja þeir að þessi mikla fjárfesting snúist um meira en bara lýðheilsu.
Jules Sergei Fedinin, sérfræðingur í rússneskum málefnum, sagði í samtali við Dagbladet að Pútín trúi ekki að Rússlandi geti komist af án hans. Þess vegna sé mikilvægt í hans huga að hann verði við völd svo hann geti haldið áfram með verkefnið.