Vladímír Pútín stendur frammi fyrir sífellt meiri efnahagslegum áskorunum þrátt fyrir að staðan í Rússlandi virðist kannski ekki svo slæm þá krauma áskoranir undir yfirborðinu en enginn talar um þær, að minnsta kosti ekki upphátt.
Á opinberum vettvangi er athyglinni beint að stríðinu í Úkraínu en á bak við tjöldin leynast alvarleg vandamál.
Samkvæmt nýrri greiningu frá stofnun alþjóðaefnahagsmála í Kiel í Þýskalandi, þá er staða rússneska efnahagslífsins miklu verri en opinberar tölur sýna. Business Insider skýrir frá þessu. Þýsku hagfræðingarnir telja að ekki sé lengur hægt að útiloka algjört efnahagslegt hrun.
Í skýrslu þeirra kemur fram að minni tekjur af olíu- og gassölu, mikill skortur á vinnuafli og nánast frosnar fjárfestingar (nema í varnarmálageiranum) séu helstu ástæðurnar fyrir efnahagserfiðleikunum.
Hagfræðingarnir efast um opinberar tölur frá Rússlandi um hagvöxt á þessu ári og telja að meira að segja að hagvöxtur upp á 0,4% sé alltof bjartsýn spá.
Þess utan eru utanríkisviðskiptin þau minnstu í 15 ár og ekkert er að gerast í stórum hluta einkageirans.
Fjármálakerfið er sagt vera undir miklu álagi og það veldur hagfræðingunum miklum áhyggjum að útlán til þeirra geira, sem styðja við stríðsreksturinn, eru mikil. Í bland við lélega rekstrarafkomu fyrirtækja og aukinn þrýsting á bankana þykir hagfræðingum staðan vera ansi slæm.
Annað stórt vandamál eru varasjóðir rússneska ríkisins. Í skýrslunni kemur fram að tveir þriðju hlutar þeirra hafi verið notaðir síðan 2022. Á sama tíma verða Rússar sífellt háðari Kína.
Refsiaðgerðir Vesturlanda hafa gert þeim erfitt fyrir við að verða sér úti um tæknibúnað, vélar og raftæki og þess vegna gegna kínversk fyrirtæki sífellt stærra hlutverki á þessu sviði.
Samvinnan við Kínverja er þó ekki hnökralaus því kínverskir bankar hafa ítrekað hikað við að afgreiða greiðslur því þeir óttast að verða beittir refsiaðgerðum af hálfu Bandaríkjanna ef þeir gera það.
Hækkandi olíuverð hefur ekki náð að snúa þróuninni við. Tekjurnar af olíuútflutningi í apríl og maí voru tæplega 30% lægri en á sama tíma á síðasta ári.