Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar þá vakna um 8% fullorðinna með höfuðverk á morgnanna. Konur oftar en karlar. Margvíslegar ástæður geta verið fyrir höfuðverknum, allt frá of miklu eða of litlu koffíni til tannverkja.
En það skiptir ekki máli hvað veldur höfuðverknum, það er óþægilegt að vakna með höfuðverk. En sem betur fer er hægt að fyrirbyggja slík leiðindi, að minnsta kosti í sumum tilfellum.
Vertu meðvituð um koffínneysluna – Koffín getur bæði linað höfuðverk og valdið höfuðverk. Hóflegt magn getur dregið úr verkjum yfir daginn en ef maður drekkur mikið koffín en sleppir því svo að morgni getur það endað með „fráhvarfs höfuðverk“.
200 mg af koffíni, sem er um tveir bollar, geta valdið höfuðverk ef maður hættir skyndilega að drekka koffín.
„Þegar það vantar skyndilega koffín, þá víkka æðarnar í heilanum sig og það getur valdið höfuðverk að morgni. Til að koma í veg fyrir þetta ætti að draga smátt og smátt úr koffínneyslunni á nokkurra vikna tímabili,“ sagði Rhiannon Lambert, næringarsérfræðingur, í samtali við The Times og bætti við að ef einkenni haldi samt áfram, þá sé rétt að leita til læknis.
Haltu reglulegum svefnrytma – Niðurstöður hollenskrar rannsóknar sýna að 40% þeirra sem þjást af mígreni upplifa að köstin hefjast að morgni, oft á milli klukkan 4 og 9. Þetta bendir til tengsla við náttúrulegan dægurrytma líkamans.
Svefnsérfræðingurinn Neil Stanley sagði að meira að segja örlitlar raskanir á svefnrútínunni geti valdið höfuðverk. „Of lítill svefn, nætur vinna, flugþreyta eða það að sofa lengi um helgar getur valdið mígreni að morgni. Reynið að halda ykkur við fastan hátta- og fótaferðartíma,“ sagði hann.
Aukning á magni stresshormónsins kortísól snemma að morgni getur einnig bætt í sársaukann.
Íhugaðu að fá þér bitgóm – Að gnísta tönnum eða spenna kjálkann eru þekktar orsakir höfuðverks á morgnana að sögn Nigel Cartes tannlæknis.
Margir átta sig ekki á að þeir gera þetta, oft vegna stress, kvíða eða breytinga á tönnunum.
Carter ráðleggur fólki að slaka á fyrir háttatímann en ef höfuðverkurinn er viðvarandi getur heimsókn til tannlæknis hugsanlega hjálpað.
„Stundum þarf að stilla bitið af. Fyrir marga hjálpar að fá sérstakan bitgóm sem er sofið með. Þetta dregur úr þrýstingi á kjálkavöðvana og kemur þar með í veg fyrir höfuðverk,“ sagði hann.