Pressan

Þetta er besti tíminn til að borða kvöldmat – Sérfræðingur segir að þetta skipti miklu máli

Mynd
Kvöldmatur er mikilvæg máltíð.

Það hefur alltaf verið spurning um menningu hvenær er besti tíminn til að borða kvöldmatinn. Íbúar í Norður-Evrópu borða hann yfirleitt snemma, Ítalir seint og Spánverjar byrja fyrst að borða þegar Ítalir eru byrjaðir á eftirréttinum.

En hvað segja vísindin? Hvenær er best að borða kvöldmat til að halda líkamanum heilbrigðum og ánægðum?

Valter Longo, forstjóri Longevity Institute við University of Southern California, segir að mikilvægt sé að líkaminn fái minnst þriggja klukkustunda hlé á milli kvöldmatsins og háttatímans.

„Ef þú borðar kvöldmat seinna, þá ertu að segja líkamanum að þú sért enn í fullu fjöri,“ sagði hann að sögn gríska miðilsins iefimerida. Hann sagði að þetta geti verið jafn ruglandi fyrir líkamsrytmann og ef þú ákveður skyndilega að ryksuga klukkan tvö að nóttu.

Adam Collins, næringarsérfræðingur við University of Surrey, benti á að það að fasta í minnst 12 klukkustundir á milli kvöldmatarins og morgunmatarins geti komið fitubrennslunni í gang.

„Þú kennir líkamanum að gera nákvæmlega það sem hann er skapaður til að gera – að brenna kolvetnum þegar þú borðar þau og fitu þegar þú ert í pásu,“ sagði hann.

En það eru auðvitað undantekningar á þessu að sögn Collins sem sagði að ef fólk þrífst vel með að borða stóran kvöldmat, sefur vel og bæði blóðfitan og blóðþrýstingurinn eru í góðu lagi, þá eigi það bara að halda því áfram. Ef fólki sofi illa og glími við heilsufarsvandamál, þá eigi það kannski að prufa að breyta til og borða stærri máltíðir snemma dags og léttan kvöldverð. Þetta sé oft hollasta mynstrið.