Það eru mörg verkefni sem fjölskyldur þurfa að takast á við dag hvern. Þar eru innkaup og þvottur meðal þeirra tímafrekustu. Þvottafjallið hækkar með hverjum deginum þótt fyrir að þvottavélin virðist snúast nánast allan sólarhringinn.
Það er auðvitað alveg nóg verkefnið að þurfa að þvo þvott en það er ekki minna verkefni að láta fatnaðinn líta vel út að þvotti loknum. Oft þarf því að taka straujárnið fram en það er þó kannski hægt að sleppa við það.
Að minnsta kosti miðað við litla „brellu“ sem hefur verið í mikilli dreifingu í netheimum að undanförnu.
Hún gengur út á að nota ísmola, setja hann í þurrkarann. Ef það er gert, þá krumpast fötin ekki eins mikið og annars.
Þetta er í sjálfu sér ekki svo galið því ísmolarnir gera að verkum að gufa myndast inni í þurrkaranum þegar heitt loft lendir á ísköldu vatninu.
Heit gufan fer djúpt inn í trefjarnar í fatnaðinum og losar þar um krumpur. Með þessu ferli slétta fötin úr sér sjálf þannig að þú færð þau nokkuð slétt úr þurrkaranum og þarft ekki að taka straujárnið fram.
Er nokkuð að gera nema prófa þetta? Þú setur bara fötin í þurrkarann og síðan ísmola og lætur þurrkarann síðan keyra á heitu prógrammi í 10 mínútur.