Elsti loftsteinsgígurinn hér á jörðinni er rúmlega 3 milljarða ára gamall. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar, sem hefur verið birt í vísindaritinu Geology, sem varpar meira ljósi á sögu jarðarinnar.
Það voru vísindamenn við Curtin University sem rannsökuðu steina í North Pole Dome í Pilbara í Western Australia fylki í Ástralíu. Lengi hefur verið rætt um hvort gígurinn þar væri eftir loftstein og þá hversu gamall hann væri og nú hefur verið skorið úr því.
The Independent skýrir frá þessu og segir að það sér mjög erfitt að aldursgreina staði sem þessa sem eru margra milljarða ára gamlir. Ástæðan er að þeir hafa breyst af völdum hita, þrýstings og vökva í gegnum tíðina.
Í þessu tilfelli notuðu vísindamenn háþróaða tækni til að aldursgreina gíginn og komust að því að loftsteinn hafi lent þar fyrir um 3 milljörðum ára.
Chris Kirkland, höfundur rannsóknarinnar, sagði að áður hafi verið staðfest að gígurinn væri eftir loftstein en óvissa hafi verið um aldur hans en nú hafi verið skorið úr um það.