Flestir eru svo heppnir að þeir eldast en samhliða því að fólk verður eldra koma nýjar áskoranir. Þegar maður gegnir einu valdamesta embætti heims, sem gerir miklar kröfur til viðkomandi, þá verður heilsufar viðkomandi eitthvað sem margir fylgjast vel með.
Það er því ekkert óeðlilegt við að mikill áhugi vakni hjá mörgum þegar nýjar upplýsingar koma fram um heilsufar þekkts fólks.
Donald Trump er í þessum hópi og í nýrri bók er ljósi varpað á líkamlegt ástand hans nú á öðru kjörtímabili hans í Hvíta húsinu.
Bókin er eftir tvo blaðamenn hjá New York Times, þau Maggie Haberman og Jonathan Swan. Í bókinni segja þau að Trump, sem er orðinn áttræður, glími nú við margvísleg líkamleg vandamál sem hafa þó ekki farið framhjá samstarfsfólki hans.
Eitt af því sem hefur vakið einna mesta athygli er hversu mikið heyrn hans hefur skerst.
„Hann heyrði svo illa að hann bað fólk um að endurtaka spurningar sem það hafði rétt lokið við að spyrja“, segir í bókinni að sögn Daily Beast.
Höfundarnir segja að Hvíta húsið hafi margoft sett opinbera viðburði þannig upp að þeir henti Trump vel út frá þeim erfiðleikum sem hann glímir við. Meðal annars hafa fundir og fréttamannafundir verið fluttir í rými þar sem hljóðið er betra en í stórum rýmum.
Í bókinni kemur einnig fram að starfsfólk Hvíta hússins hafi í vaxandi mæli tekið eftir tímabilum þar sem Trump er mjög þreyttur og líkamlega örmagna.
Einnig er minnst á marblettina sem Trump fær stundum. Þeir eru afleiðing af lélegu blóðstreymi til hjartans en það getur einnig valdið bólgnum ökklum og fótum.
Trump er sagður reyna að fela marblettina með að setja farða á hendurnar og aðstoðarfólk hans er oft með andlitsfarða og hárvörur meðferðis til að hægt sé að láta Trump líta betur út þegar hann kemur fram opinberlega.