Ef upplýsingar frá rússneskum herbloggurum eru marktækar þá hljóta þær að valda Vladímír Pútín miklum áhyggjum.
Upplýsingarnar veita innsýn í eitt af því sem skiptir allra mestu máli í stríðinu í Úkraínu og um leið rússneskt ríkisleyndarmál.
Mannfall Rússa í Úkraínu.
Fjöldi rússneskra herbloggara segir að það líði að meðaltali frá tíu dögum upp í þrjár vikur frá því að rússneskir karlar ganga til liðs við herinn þar til þeir deyja á vígvellinum.
Þetta er auðvitað mikið áhyggjuefni og skelfilegt séð með rússneskum augum.
En aðrar tölur eru eiginlega enn skelfilegri að sögn útlæga rússneska miðilsins Astra sem vitnar í rússneska herbloggara. Þeir segja að sögn að frá því að rússneskur hermaður er sendur í orustu í fremstu víglínu, líði að meðaltali aðeins 25 til 35 mínútur þar til hann er allur.