Pressan

Spánverjar fara gegn því sem aðrar Evrópuþjóðir gera – Því getur lokið fljótlega

Mynd
Mynd úr safni. Mynd:Wikimedia Commons

Evrópusambandið vill einfalda allt það sem snýr að því að senda ólöglega innflytjendur til síns heima. Spánverjar fara hins vegar aðra leið og vilja gera eina milljón ólöglegra innflytjenda að löglegum innflytjendum.

Þarna takast á stálin stinn. Meginstraumurinn í Evrópu núna er að flýta heimsendingum á ólöglegum innflytjendum, herða aðgerðir á landamærum og koma upp heimferðarmiðstöðvum utan Evrópusambandsins. En ríkisstjórnin í Madrid hefur valið að gera þetta þveröfugt.

Ólöglegir og skilríkjalausir innflytjendur, sem eru á Spáni, hafa síðan í apríl getað sótt um dvalar- og atvinnuleyfi.

Pedro Sanchez, forsætisráðherra, er ekki þeirrar skoðunar að það fylgi því engin vandamál að taka við innflytjendum en hann telur að Spánn hafi þörf fyrir fleiri útlendinga.

En nú gæti spænska leiðin endað fyrir dómstóli Evrópusambandsins.

Hæstiréttur Spánar hefur farið fram á að dómstóllinn leggi mat á hvort þessar aðgerðir spænsku ríkisstjórnarinnar stríði gegn ESB-reglum. El País skýrir frá þessu.

Málið hefur því vaxið úr að vera spænsk innanríkispólitík yfir í grundvallarspurningu fyrir ESB: Hversu langt getur eitt land gengið, þegar önnur ríki ESB reyna að fara í hina áttina?