Pressan

Sérfræðingar segja að þetta eigi aldrei að geyma í ísskápshurðinni

Mynd
Mynd úr safni.

Ísskápshurðin er oft hentugasti staðurinn til að geyma kælivörur. Allt er þá við höndina en margir vita ekki að þetta er óstöðugasti hluti ísskápsins hvað varðar hitastig. Þetta getur haft áhrif á gæði matarins, öryggi hans og endingartíma hans.

Sérfræðingar í skipulagningu og geymslu matvæla segja að sú staðreynd að stöðugt er verið að opna og loka ísskápnum geri hurðina að því svæði sem verður fyrir mestu hitasveiflunum. Þetta getur orðið til þess að sum matvæli skemmast hratt og þau geta jafnvel orðið heilsufarsógn.

Í umfjöllun Southern Living um málið kemur fram að eftirfarandi matvæli eigi aldrei að geyma í hurðinni.

Mjólk og mjólkurafurðir á ekki að geyma í hurðinni. Mjólk er viðkvæm fyrir hitabreytingum og því er best að geyma hana í hillunum, helst á miðri hillu eða aftast í ísskápnum en þar er hitastigið stöðugast.

Egg á helst ekki að geyma í hurðinni. Skiptir þá engu þótt sumir ísskápar séu með sérstaka eggjabakka í hurðinni. Egg eru viðkvæm fyrir hitasveiflum og þess utan vernda eggjabakkarnir þau fyrir lykt og hættunni á að þau brotni. Best er að geyma þau í hillu efst í ísskápnum.

Hrátt kjöt og fuglakjöt þarf lægra hitastig. Ef nautakjöt, svínakjöt eða fuglakjöt er geymt í hurðinni eykst hættan á bakteríuvexti mjög mikið af því að þetta svæði er hlýrra en restin af ísskápnum. Mælt er með að kjöt sé geymt vel innpakkað í neðstu hillunni sem er eitt kaldasta svæðið í ísskápnum.

Lyf. Það getur dregið úr virkni sumra lyfja ef þau eru geymd við hið breytilega hitastig sem er í hurðinni. Mælt er með að þau séu geymd í hillu og helst í öskju eða sérstöku íláti sem veitir vernd gegn hitasveiflum og birtu.