Pressan

Segir að Trump klári líklega ekki kjörtímabilið – „Hann sefur allan tímann, slefar á sig eða hvað sem er“

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Vangaveltur um framtíð Donald Trump eru fyrirferðarmiklar í bandarískum stjórnmálum. Á meðan Trump talar sjálfur um framtíðina og selur varning, sem vísar til þess að hann verði þriðja kjörtímabilið í Hvíta húsinu, eru aðrir sem velta upp spurningunni um hversu lengi hann geti setið í viðbót í embætti.

James Carville, sem er einn af áhrifamestu hugmyndasmiðum Demókrataflokksins, telur ekki að Trump geti lokið kjörtímabilinu. Newsner skýrir frá þessu.

Í hlaðvarpinu Politics War Room setti hann fram athyglisverða kenningu um að Trump muni víkja úr embætti áður en kjörtímabilinu lýkur.

Hann benti meðal annars á að reikna megi með sterkum skilaboðum frá bandarískum kjósendum í þingkosningunum í nóvember næstkomandi.

„Trump hefur ekki grænan grun um það sem er í vændum. Þau segja honum það ekki. Kosningarnar gegn honum í nóvember verða eiginlega stórkostlegar,“ sagði Carville.

Hann lét ekki nægja að spá fyrir um brotthvarf Trump því hann kom einnig með tímamörk á hversu lengi í viðbót Trump muni sitja í embætti. Hann sagði að Trump muni ekki sitja lengur en fram að páskum 2027.

„Það er augljóst að hann hefur það ekki gott. Hann sefur allan tímann, slefar á sig eða hvað sem er,“ sagði Carville.