Pressan

Sakfelldur fyrir morð á 15 ára pilti á leikvelli

Mynd
Hann fékk þungan dóm.

Nýlega var hinn 25 ára Aderahman Boumzough fundinn sekur um að hafa myrt 15 ára pilt, Rene Graham, á leikvelli í Lundúnum í júlí 2024 þegar fjölskyldutónlistarhátíð stóð yfir.

Sky News skýrir frá þessu og segir að lögreglan hafi verið kölluð að leikvellinum um klukkan 19.20 þann 21. júlí 2024 eftir að skoti var hleypt af.

Upptökur úr eftirlitsmyndavélum sýndu að maður gekk rólegur og yfirvegaður að leikvellinum og hleypti síðan einu skoti af.

Skotið hæfði Rene Graham í bringuna og lést hann á vettvangi.

Upptökur sýndu einnig að Boumzough reyndi að skjóta aðra manneskju en byssan stóð á sér og þá flúði hann af vettvangi.

Boumzough var dæmdur í 35 ára og 169 daga fangelsi.