Pressan

Ógeðfellt leyndarmál Donald Trump skekur Hvíta húsið

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Það alveg öruggt að það er aldrei rólegt í kringum Donald Trump. Ef hann skapar ekki umtal sjálfur þá sjá aðrir um að skapa umtal um hann. Upplýsingar sem koma fram í nýrri bók um hann afhjúpa ógeðfellt leyndarmál hans.

Upplýsingarnar sýna að Trump leggur ekki mikla áherslu á hreinlæti og það vekur áhyggjur um að hann geti fengið alvarlega sjúkdóma.

Í bókinni „Regime Change“, eftir blaðamennina Maggie Haberman og Jonathan Swan, fer víðs fjarri að einhver hetjumynd sé dregin upp af Trump. Bókin byggir að stórum hluta á samtölum við samstarfsfólk forsetans í Hvíta húsinu og fóru heimildarmenn ekki leynt með að þeir hafi áhyggjur af hinu ógeðfellda leyndarmáli hans.

Það sem um ræðir eru baðherbergisvenjur hans að sögn Irish Star.

Flestir vilja hafa flísar á baðherbergisgólfinu sínu en Trump vill hins vegar hafa þykkt gólfteppi á baðherberginu sínu en það er auðvitað ekkert annað en tifandi tímasprengja.

Í bókinni kemur fram að starfsfólk Hvíta hússins hafi lengi barist örvæntingarfullri baráttu við raka og hugsanlegan bakteríuvöxt.

„Svæðið við sturtuna var oft gegnblautt, starfsfólkið var aldrei visst um af hverju en hafði áhyggjur af vexti myglusvepps þarna undir,“ er haft eftir heimildarmönnum í Hvíta húsinu.

Í staðinn fyrir að láta fjarlægja teppið til að hægt væri að leysa hið eiginlega vandamál fann Trump upp á sínu eigin kerfi. Það gengur út á að litlir bútar af teppinu, ekki baðmottu, eru lagðir ofan á stóra teppið. Síðan verður starfsfólkið að berjast við  þetta teppi ofan á teppi þegar þrifið er.

Bandarísk heilbrigðisyfirvöld vara einmitt við svona teppaklikkun. Ástæðan er að ef raki festist í trefjum teppisins getur hættulegur myglusveppur þróast á innan við sólarhring.

Fyrir mann á þessum aldri, Trump er nýlega orðinn áttræður, þá getur myglusveppur verið mjög alvarlegt mál.

Sérfræðingar segja að myglusveppur getir í versta falli valdið alvarlegri lungnasýkingu og krónískum lungnasjúkdómum hjá fólki með veikburða ónæmiskerfi.

En það er ekki bara baðherbergi Trump sem fer illa í starfsfólkið því einkasvefnherbergi hans líkist að sögn oft vígvelli sem erfitt er að koma skikki á.