Ein virtasta óháða hugveitan í Bandaríkjunum, Center for Strategic and International Studies (CSIS), á sviði varnar- og öryggismála birti nýlega nýja greiningu á tölum yfir mannfall í stríðinu í Úkraínu.
Mat hugveitunnar er að 1,4 milljónir rússneskra hermanna hafi fallið, særst eða týnst í stríðinu. Telur hugveitan að 400.000 til 450.000 hafi fallið.
Þetta eru „himinháar tölur“ sögðu Seth G. Jones og Riley McCabe, sem gerðu greininguna.
Mannfall Rússa í Úkraínu er rúmlega fjórum sinnum meira en mannfall Bandaríkjamanna í öllum stríðum eftir síðari heimsstyrjöldina og rúmlega níu sinnum meira en mannfall Rússa í öllum stríðum eftir síðari heimsstyrjöldina.
Hvað varðar Úkraínu telur hugveitan að 525.000 til 625.000 hafi fallið, særst eða týnst. Þar af hafi 125.000 til 150.000 fallið.