Á meðan barnaníðingurinn Jeffrey Epstein afplánaði fangelsisdóm í Flórída í Bandaríkjunum heimsótti Sarah Ferguson, fyrrum hertogaynja af York, hann tvisvar sinnum.
Þetta kemur fram í tölvupóstum og skjölum sem voru gerð opinber nýlega.
Ferguson heimsótti Epstein tvisvar 2009 en þá afplánaði hann dóm fyrir að hafa selt barnunga stúlku í vændi.
TMZ skýrir frá þessu og byggir á upplýsingum úr tölvupóstum og skjölum sem voru gerð opinber nýlega.
Ferguson er sögð hafa hitt Epstein á skrifstofu í Flórída þar sem hann starfaði en starfið var hluti af umdeildu fyrirkomulagi sem veitti honum færi á að fara úr fangelsinu að degi til.
Ferguson er sögð hafa sagt Epstein vera náinn vin sinn og hún fékk bílstjóra hans til að sækja sig á flugvöllinn þegar hún fór í aðra heimsóknina.
Einnig kemur fram að hún hafi lokið einum tölvupósti til Epstein með orðunum: „Frá rauðhærðu vinkonu þinni.“