Á síðustu árum hefur tilfellum stífkrampa fjölgað mikið í Bandaríkjunum. Á síðasta ári voru 38 tilfelli skráð en 2015 voru þau 29.
CNN skýrir frá þessu og segir að sífellt færri láti bólusetja sig gegn stífkrampa. Bóluefnið veitir góða vörn gegn stífkrampa og því er það mikið áhyggjuefni að þeim fer fækkandi sem láta bólusetja sig gegn honum.
Sérfræðingar, sem CNN ræddi við, sögðu að stífkrampi sé enn alvarlegt vandamál í Bandaríkjunum og óttast þeir að margir séu í viðkvæmri stöðu fyrir þessari banvænu sýkingu.
Robert F. Kennedy Jr., heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, hefur ekki legið á skoðunum sínum varðandi bóluefni en hann telur að þau séu hættuleg. Hann hefur skorið niður fjárveitingar til þróunar bóluefna og vill að börn fái færri bóluefni en áður.
Kennedy var kallaður fyrir þingnefnd í apríl vegna mislingafaraldurs. Í umræðum þar vísaði hann því á bug að skoðanir hans á bóluefnum hafi orðið til þess að færri láti bólusetja sig.
Nú vill hann fá aðgang að sjúkraskýrslum Bandaríkjamanna til að leita eftir tengslum á milli bóluefna og einhverfu að sögn CNN.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur slegið því fast að ekki séu tengsl á milli bóluefna og einhverfu og að ekki sé hægt að sýna fram á slík tengsl.