Pressan

Kom heim úr fríi með 38 óhugnanlega leynigesti í heilanum

Mynd
Er heilinn að eldast? Mynd:Getty

Fríið á venjulega að skilja eftir sig góðar minningar en stundum gerist það því miður að fríið fer ekki á besta veg, til dæmis vegna veikinda. Stundum er fríið bara mjög gott en það sem við tökum með heim úr því er ekki eins gott og sjúkdómar eða sýkingar geta komið upp eftir fríið og jafnvel löngu eftir að því lýkur.

Sumir sjúkdómar geta verið næstum einkennalausir árum saman áður en þeir brjótast úr og hafa jafnvel alvarlegar afleiðingar.

Þetta getur Lowri Denman, frá Wales, borið vitni um. Hún fór til Indlands 2007 og ákvað að borða bara grænmeti og ávexti á meðan á dvölinni stóð til að forðast sjúkdóma sem geta borist með matvælum.

Fjórum árum eftir heimkomuna kom eins metra langur bandormur út úr henni. Hún hélt að þar með væri málið úr sögunni því hún hafði ekki fundið fyrir neinum einkennum.

Skömmu síðar byrjaði hún þó að fá mikil höfuðverkjarköst og síðan fyrsta flogakastið. Heilasneiðmynd var tekin og sýndi að hún var komin með taugablöðrubólgu sem er sjaldgæf sníkjudýrasýking í heilanum af völdum lifra úr svínabandormi. Í heila hennar voru 38 sníkjudýr.

Þessi sjúkdómur getur blossað upp ef bandormssýking er ekki meðhöndluð.

„Það var svo ógeðslegt að hugsa til þess að þessi dýr væru í höfðinu mínu,“ sagði Denman.

Hún var sett í meðferð en það reyndist erfitt að vinna sigur á sníkjudýrunum. Hún missti ökuréttindi sín vegna hættunnar á að hún fengi flogaköst, hún varð að hætta að vinna og neyddist til að flytja heim til föður síns.

Veikindin höfðu einnig áhrif á andlega heilsu hennar. Kvíði, ofsóknaræði og geðrof urðu til þess að hún var lögð inn á geðdeild í þrjá mánuði 2016.

Sem betur fer er staðan allt önnur og betri nú. Lyf halda flogaköstunum niðri og hún hefur ekki fengið slíkt kast í um tíu ár. Hún gat snúið aftur út á vinnumarkaðinn 2022.