Pressan

Hversu mikið eiga byrjendur að ganga? – Þetta segja sérfræðingarnir

Mynd
Það er best að byrja rólega. Mynd:Getty

Margir halda að hreyfing hafi ekki áhrif fyrr en maður er farinn að æfa af mikilli ákefð. Þetta getur gert byrjendum erfitt fyrir því þeir eiga þá kannski erfitt með að sjá tilganginn með því að stunda hreyfingu ef þeir reikna með að hún skili engum árangri fyrst um sinn.

En eftir því sem segir í umfjöllun Runner´s World þá er það mikilvægasta fyrir byrjendur að byrja hægt og rólega. Segja sérfræðingar að best sé að byrja með því að ganga í 20 til 30 mínútur þrisvar til fimm sinnum í viku. Það svarar til 6 til 15 kílómetra á viku, allt eftir gönguhraðanum.

Ef fólk er ekki vant því að hreyfa sig, þá geta meira að segja stuttir göngutúrar orðið til þess að það finnur fyrir þeim í líkamanum. Þess vegna mæla sérfræðingar með að lengd göngutúranna sé aukin hægt og rólega til að forðast verki í hnjám, baki og sinum.

Runner´s World segir að ekki eigi að lengja göngutúrana um meira 10% á viku.

Þeir sem stunda hreyfingu fyrir, til dæmis hjólreiðar eða einhverjar íþróttir, geta gengið lengra þegar þeir byrja að stunda göngu. En líkaminn þarf samt sem áður að venjast álaginu í gönguferðum.