Í ágúst á síðasta ári fannst Robert Brown, 57 ára, látinn á bekk við göngustíg í Northampton. Honum hafði blætt út. Morðrannsókn hófst strax en að lokum úrskurðaði dánardómstjóri að Brown hefði látist af slysförum.
Daily Star skýrir frá þessu og segir að síðast hafi sést til Brown á lífi í matvöruverslun daginn áður en hann fannst látinn. Það var reiðhjólamaður sem fann hann eftir að hann sá blóð leka niður á milli fjalanna í bekknum.
Lögreglan lagði mikla vinnu í rannsóknina og lét meðal annars slæða síkið við hlið göngustígsins í leit að morðvopninu. Þrennt var handtekið vegna málsins en var síðan sleppt.
Dánardómstjóri úrskurðaði nýlega að Brown hefði látist af slysförum eftir að hann hafði velt sér og lent á hnífi sem var í bakpokanum hans. Talið er líklegt að hann hafi sofið djúpum svefni og lagst ofan á bakpokann af fullum þunga og síðan hafi hnífurinn stungist í gegnum bakpokann og í handlegg hans. Brown fékk 3 cm skurð á handlegg. Það blæddi úr skurðinum og lést Brown af völdum blóðmissis.