Hærri sjávarhiti færir lítt þekktan og hugsanlega hættulegan gest nærri evrópskum baðströndum.
Á undanförnum árum hefur þurft að banna fólki að fara í sjóinn sums staðar í Evrópu vegna mengunar og heilbrigðisviðvarana.
Nú fer sjórinn hlýnandi og ágangur ferðamanna fer vaxandi og samhliða þessu aukast áhyggjur af sérstakri bakteríutegund sem er oft lýst sem „holdétandi“.
Metro hefur eftir Arif Gasilov, hjá ráðgjafafyrirtækinu Gasilov Group, sem starfar á sviði umhverfismála, að þessi baktería hafi alltaf verið til staðar við strendur og sé því ekki ný og framandi ógn.
Það sem sé öðruvísi núna sé að hlýrri sjór geri að verkum að bakterían komist á nýja staði og lengi það tímabil sem magn hennar getur verið svo mikið að það sé hættulegt. Hann sagði að bakterían safnist upp við árósa, lón og staði með heitu vatni og litlu saltmagni. Þetta séu staðir þar sem fólk vill gjarnan synda.
Sérfræðingar hafa sérstaklega miklar áhyggjur af Vibrio bakteríufjölskyldunni sem er oft við hlýjar strendur. Flestar bakteríurnar í þessari fjölskyldu er meinlausar en ekki alveg allar. Má þar nefna Vibrio vulnificus sem er sögð „holdétandi“ en hún getur valdið alvarlegum sýkingum og jafnvel banvænum.