Pressan

Hakkarar brutust inn í almannavarnarkerfið – Geimverur eru að ráðast á okkur

Mynd
Mörgum brá illilega við skilaboðin um árás geimvera.

Mörg þúsund Brasilíubúar fengu óvænt skilaboð nýlega frá almannavörnum landsins og brá mörgum þeirra líklega mjög í brún þegar þeir lásu skilaboðin. Þau hljóðuðu upp á að geimverur væru að ráðast á landið.

Aðvörunin var send út um miðja nótt til íbúa í mörgum stórum borgum og eins og gefur að skilja tóku margir móttakendanna þeim alvarlega enda um almannavarnarskilaboð að ræða.

En það kom fljótt í ljós að geimverur voru ekki að ráðast á Brasilíu. Tölvuþrjótar höfðu brotist inn í kerfið og sent skilaboðin.

Brasilískir fjölmiðlar segja að skilaboðin hafi verið send klukkan 01.30 aðfaranótt laugardags.

Í bænum Belo Horizonte fékk fólk skilaboð með textanum: „Gætið ykkar: GEIMVERUÁRÁS. Fólk, við erum komnar.“

Í stórborgum á borð við Sao Paulo og Rio de Janeiro fékk fólk dularfyllri skilaboð með tilviljanakenndum orðum og undarlegum setningum.

Skömmu eftir að skilaboðin voru send, birtust skilaboð á samfélagsmiðlinum X þar sem tölvuþrjótar lýstu yfir ábyrgð á skilaboðasendingunum.