Pressan

Hættuleg mýflugnaveira getur borist til Evrópu

Mynd
Mýfluga. Mynd:Getty Images

Mýflugur eru pirrandi en í Evrópu eru þær sjaldan hættulegar en hækkandi hitastig í álfunni getur skapað góð skilyrði fyrir mýflugur sem bera zikaveiruna eða beinbrunasótt með sér.

Mojca Kristan, prófessor í læknisfræðilegri skordýrafræði, segir að mýflugur, sem bera hættulegar veirur með sér, geti borist til Evrópu í náinni framtíð vegna hækkandi hitastigs. The Independent skýrir frá þessu. Meðal þessara sjúkdóma eru zikaveiran og beinbrunasótt.

Kristan sagði að mýflugum líki vel við heitt og kyrrt vatn þar sem þær geta komið eggjum sínum fyrir í.

Zikaveiran er almennt ekki hættuleg fólki og sjúkdómseinkenni hennar eru væg en sjúkdómurinn getur valdið alvarlegum skaða á fóstrum. Veiran getur einnig þróunargalla á börnum, höfuð þeirra verður þá mjög lítið.