Pressan

Eyrnasuð getur verið snemmbúið hættumerki

Mynd
Eyrnasuð er ekki af hinu góða.

Mörg upplifum við smávægilegar breytingar á okkur sjálfum í hinu daglega lífi en yfirleitt hugsum við ekki nánar út í þær. Það getur verið að okkur finnist erfiðara að fylgjast með samtölum þegar margir tala samtímis eða að aukahljóð komi hægt og rólega í sjónvarpið. Oft er þetta bara afskrifað og sagt vera hluti af því að eldast.

En samkvæmt því sem sérfræðingar hjá Penn State Health segja og á grunni talna frá bandarískum heilbrigðisyfirvöldum þá getur viðvarandi hringing, suð eða hvæs í eyrum verið snemmbúið merki um að heyrnin sé að breytast. Science Daily skýrir frá þessu.

Milljónir manna um heim allan upplifa þetta. Oft kemur þetta í kjölfar heyrnartaps sem getur verið afleiðing af of miklum hávaða árum saman eða vegna þess að fólk eldist.

Þetta getur haft neikvæð áhrif á svefninn, einbeitingu og lífsgæði.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að tengsl eru á milli heyrnartaps og aukinnar hættu á félagslegri einangrun, að fólk detti og hraðari hugrænnar hrörnunar hjá eldra fólki.