Mikið blóðbað er fram undan hjá þýska bílaframleiðandanum Volkswagen því fyrirtækið hyggst leggja 100.000 störf niður á næstu árum. Það er því ljóst að niðurskurðarhnífurinn er enn á lofti hjá Volkswagen.
Áður hafði fyrirtækið tilkynnt að 50.000 störf yrðu lögð niður fram til 2030 en nú hefur þessi tala tvöfaldast.
Manager Magazin skýrir frá þessu og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum hjá Volkswagen að 100.000 störf verði lögð niður.
Allt að fjórum verksmiðjum verður lokað í Þýskalandi. Þetta eru að sögn Volkswagen-verksmiðjurnar í Hannover, Zwickau og Emden og Audi-verksmiðjan í Neckarsulm.
Um 657.000 manns starfa nú hjá Volkswagen en fyrirtækið er með verksmiðjur víða um heim.