Eftir að Robert Brandon Keller, 32 ára karlmaður frá Georgíu í Bandaríkjunum, hafði myrt manninn sem bauð honum far ákvað hann að grípa til örþrifaráða til þess að sleppa við fangelsisvist. Nú er ljóst að sú tilraun hans bar ekki árangur og hefur hann verið sakfelldur fyrir að hafa myrt Bruce Dupree þann 14. október árið 2024.
Bruce Dupree hafði ekkert unnið sér til saka annað en að stöðva bifreiðina sína þegar hann sá puttaferðalangt og bjóða Robert Brandon Keller far þennan örlagaríka dag. Þennan greiða launaði Keller með því að ræna bifreiðinni með því að stinga Keller ítrekað í búk, höfuð, handleggi og háls og skilja hann eftir í blóði sínu í vegakantinum.
Dupree var enn lifandi eftir árásina og reyndi af veikum mætti að bjarga sér með því að veifa til bifreiða sem óku fram hjá honum. Einhver vegfarandi hringdi í lögregluna en þegar hana bar að garði var það of seint. Dupree hafði látist af áverkum sínum.
Eftir að lögregla hafði haft hendur í hári Keller ákvað hann að freista þess að sleppa við fangavist. Hann krækti því út úr sér bæði augun og beit framan af tungu sinni. Hann vonaði að með þessu athæfi yrði hann úrskurðaður ósakhæfur vegna andlegra veikinda og gert að sæta vist á réttargeðdeild frekar en í fangelsi.