Sveitarstjórnarpólitíkus í Póllandi hefur verið ákærður fyrir að móðga forseta landsins, Karol Nawrocki, með því að líkja forsetanum við teiknimyndapersónuna Shrek. Á hann nú yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Frá þessu greinir Notes from Poland.
Hinn ákærði, Wojciech Ślusarczyk, neitar sök í málinu og segir að færslan á samfélagsmiðlum, sem vísað er til í ákæru, hafi fyrir það fyrsta ekki verið vísun í forsetann og auk þess sé færslan ekki til þess fallin að móðga þar sem það sé ekki neikvætt að vera líkt við Shrek.
Málið kom upp í haust þegar Ślusarczyk, sem situr í sveitarstjórn í Radomsko-héraðinu fyrir hægriflokkinn PSL, deildi grínmynd þar sem má sjá forsetafrúna, Mörtu Nawrocka, klædda í konunglegan hátíðarbúning. Myndin kom ekki frá Ślusarczyk heldur hafði verið í mikilli dreifingu meðal stuðningsmanna forsetans. Það sem Ślusarczyk gerði var hins vegar að bæta texta við myndina: „Og hvar er Shrek?“ Margir túlkuðu þessi orð sem vísun til þess að Nawrocka sé á myndinni nauðalík eiginkonu Shrek, Fíónu prinsessu.
Ákæra var gefin út í síðasta mánuði eftir að ákæruvaldið ráðfærði sig við sérfræðing í málvísindum sem var fenginn til að meta hvort orðið Shrek gæti talist móðgun við forsetann. Eins er Ślusarczyk sakaður um að hafa móðgað forsetafrúna á samfélagsmiðlum.
Lögmaður Ślusarczyk segir í samtali við pólska miðilinn Gazeta Radomszczańska að ákæran sé með öllu haldlaus enda hafi færslan verið skot á þá aðila sem gerðu myndina af forsetafrúnni, en ekki á forsetahjónin sjálf.
Ślusarczyk segir sjálfur á samfélagsmiðlum að Shrek sé jákvæð persóna og telur hann að málvísindamaðurinn sem ákæruvaldið réði sé á sama máli. Sá komst að þeirri niðurstöðu að Shrek tengist heiðarleika, hollustu, falinni viðkvæmni, uppreisn og heilindum. Persónan sé notuð í skólum í Póllandi til að kenna börnum umburðarlyndi og gagnrýna hugsun.
Ślusarczyk spyr í færslu á Facebook hvort ákæruvaldið hafi virkilega ekkert betra við tímann að gera.