Pressan

18 mánaða drengur var úrskurðaður látinn - Síðan fundu starfsmenn líkgeymslunnar lífsmörk

Mynd

Hinn 18 mánaða gamli Vincent Lorenzo Fiordilino var úrskurðaður látinn klukkan 18:20 þann 8. febrúar í Arizona, Bandaríkjunum. Þennan dag fór Ofurskálin svokallaða fram, úrslitaleikur ameríska fótboltans (NFL), en íþróttin nýtur mikilla vinsælda í Bandaríkjunum. Foreldrar drengsins voru að horfa á leikinn og höfðu fengið sér í glas og einnig reykt gras. Þau tóku því ekki eftir því þegar drengurinn ráfaði frá þeim og datt ofan í sundlaugina. Þar fundu foreldrarnir hann meðvitundarlausan og hringdu strax í neyðarlínuna á meðan fjölskyldumeðlimur hóf endurlífgunartilraunir. Símtalið til neyðarlínunnar barst klukkan 17:38.

Viðbragðsaðilar voru snöggir á vettvang og innan skamms var drengurinn kominn á sjúkrahúsið þar sem teymi gjörgæslunnar tók við endurlífgunartilraunum. Klukkan 18:13 ákvað læknirinn sem fór fyrir teyminu að drengurinn væri látinn. Hann ákvað að tilkynna foreldrum Vincents að það væri ekkert meira sem hægt væri að gera.

Læknirinn átti svo stutt orðaskipti við lögreglumann á vettvangi sem mótmælti því að drengurinn yrði úrskurðaður látinn enda virtist drengurinn enn vera með lífsmörk. Læknirinn lét sér þó ekki segjast og vísaði til þess að hann, ólíkt lögreglumanninum, hefði lokið læknanámi og vissi hvað hann væri að gera.

„Læknirinn sagði með hrokafullum hætti að hann væri læknir, hann væri með læknagráðuna, hann hefði farið í læknanám af ástæðu og að ég ætti að leyfa honum að sinna starfi sínu,“ mun lögreglumaðurinn hafa sagt en hann segist eins hafa heyrt hjúkrunarfræðing segja að drengurinn væri með lífsmörk. 

Klukkan 18:20 var drengurinn úrskurðaður látinn en að sögn foreldra og áðurnefnds lögreglumanns virtist drengurinn þó enn vera að reyna að ná andanum, þrátt fyrir að hann ætti þá að vera dáinn. Þegar drengurinn var fluttur yfir í líkgeymslu virtist hann enn vera að gefa frá sér hljóð en starfsmenn sjúkrahússins sögðu að það væri eðlilegt, enda líkið að losa sig við súrefni.

Fjórum klukkustundum eftir að drengurinn var færður í líkhúsið fundu starfsmenn hann þar lifandi. Hann andaði þar aðstoðarlaust og var því lifandi.

Málið er nú til rannsóknar enda þykir ljóst að pottur hafi víða verið brotinn í málinu. Foreldrar drengsins hafi gerst sekir um vanrækslu sem varð til þess að hann endaði í sundlauginni en svo hafi læknirinn gerst sekur um vanrækslu þegar hann gekk ekki úr skugga um að drengurinn væri í raun og veru látinn. Mun læknirinn hafa haldið því fram að drengurinn væri að láta lífið sökum fjöllífærabilunar og heilaskemmda, en drengurinn er á lífi í dag með enga heilaskemmd. 

NBC greinir frá