Pressan

Maður handtekinn á Tenerife fyrir illa meðferð á 49 veiðihundum

Mynd
Einn hundanna sem fundust. Mynd: Guardia Civil

Lögreglan á Tenerife hefur handtekið mann vegna gruns um illa meðferð á 49 veiðihundum. Maðurinn hélt hundana landareign í dreifbýli á suðurhluta eyjarinnar fögru. 

Canarian Weekly greinir frá. 

Lögregla hóf rannsókn á málinu í kjölfar tilkynningar frá landverði, þess efnis að fjölda hunda væri haldið föngnum við óviðunandi aðstæður á landareigninni. 

Við rannsókn á vettvangi fundust 49 hundar hér og hvar um landareignina. Þar af var ekki hægt að finna rafræn auðkenni né heilsufarsupplýsingar um 19 þeirra. 

Rannsókn dýralæknis leiddi í ljós að margir hundanna voru afar illa hirtir og sýndu merki um viðvarandi vannæringu. Segir dýralæknirinn að hundarnir hafi fengið of lítinn mat og vatn í mjög langan tíma. 

Lögreglan fann einnig á landareigninni vatnstank sem hún telur hafa verið notaðan til að þjálfa veiðihunda. Einnig fundust líkamsleifar hunda og mikið af brenndum dýrabeinum. 

Landareignin var gífurlega sóðaleg og mikið af hundaskít. Eigandinn hefur verið handtekinn, grunaður um brot á dýraverndarlögum. Rannsókn málsins heldur áfram.