Danskur maður átti alls ekki von á því að þegar hann og kærasta hans til sjö ára komu á sameiginlegt heimili þeirra í Ribe myndi annar maður bíða eftir þeim. Í ljós kom að kærastan var einnig kærasta þessa manns og síðar kom upp úr krafsinu að hún átti í sambandi með einum mannni til viðbótar og lifði því þreföldu lífi. Mennirnir vissu ekki hver af öðrum og sá fyrstnefndi hefur nú stigið fram og sagt sögu sína til að koma því til skila að svona nokkuð geti komið fyrir karlmenn en ekki bara konur. Sálfræðingur telur mennina vera fyrirmyndir og gott sé að saga þeirra sé sögð.
Fjallað er um þetta á vef TV2 í Danmörku sem ræddi við manninn sem bjó með konunni í Ribe en hann heitir Andi Johannessen. Fjallað hafði verið um málið áður í hlaðvörpunum Den falske kæreste og Hanrej i Ribe en það er fyrst nú sem að Johannessen stígur fram undir fullu nafni.
Sjö ár og tvö ár
Johannessen og konan höfðu verið par í sjö ár og bjuggu saman í íbúð í Ribe í Danmörku en miðað við umfjöllun TV2 áttu þau ekki börn. Dag einn þegar þau voru að koma heim beið maður fyrir utan fjölbýlishúsið þar sem þau bjuggu. Johannessen kannaðist ekki við hann.
Kærastan strunsaði framhjá manninum en þegar Johannessen ætlaði að fylgja á eftir stöðvaði maðurinn hann með því að leggja hönd á brjóstkassa hans og spyrja:
„Hver ert þú?“
Johannessen tjáði manninum að hann og konan byggju saman í húsinu. Þá fölnaði ókunnugi maðurinn og sagði:
„Það er skrýtið af því ég og hún erum búin að vera saman í tvö ár.“
Kippt
Frá og með þessu samtali var það líf sem mennirnir höfðu þekkt með konunni í raun í rúst. Þeir fóru í kjölfarið saman upp í íbúðina og kröfðu konuna, sem hafði verið kærasta þeirra beggja án þess að þeir vissu nokkuð um það, um skýringar.
Síðar kom í ljós að konan hafði átt einn kærasta til viðbótar og voru þeir því þrír.
Johannessen segist stíga fram og segja sögu sína opinberlega til að leggja áherslu á afleiðingar þess að verða fyrir slíkum blekkingum af hálfu þeirrar manneskju sem standi manni næst. Hann segist einnig vilja koma á framfæri að karlmenn geti orðið fyrir slíku.
Falið
TV2 ræðir einnig við Charlotte Kappel sálfræðing sem segist telja líklegt að saga Johannessen sé ekki einsdæmi og karlar séu mun tregari en konur til að segja frá framhjáhaldi.
Framhjáhald kvenna sé meira falið en framhjáhald karla.
Mennirnir þrír, sem hin ónefnda kona blekkti, hafa tengst vináttuböndum og Kappel segir það mjög gott og hrósar þeim fyrir að vera opnir með þau særindi sem konan hafi valdið þeim.
Hinir mennirnir tveir eru ekki nafngreindir í umfjöllun TV2 sem hefur þó rætt við þá báða og segir þá staðfesta allt sem Johannessen segi.
Johannessen segir samband hans og konunnar hafa verið gott fram að þessum degi. Hann hafi ekki haft hugmynd um framhjáhald hennar og spyrji sig nú hvort samband þeirra hafi verið eintóm blekking frá upphafi til enda. Hann segir að hann og hinnir mennirnir tveir hafi ekki átt neina sameiginlega vini og því aldrei umgengist sama fólkið. Konan hafi síðan iðulega logið að tveimur þeirra um hvar hún væri þegar hún var í raun með þeim þriðja.
Hann segir að eftir á hyggja hefðu oft komið upp aðstæður þar sem hann hefði átt að spyrja fleiri spurninga en hann hafi valið að treysta konunni enda sé traust mikilvægt í ástarsamböndum.
Johannessen segir að lokum að hann hafi skammast sín fyrir að hafa verið blekktur svona lengi án þess að uppgötva neitt en hann vilji með viðtalinu við TV2 senda öðrum karlmönnum, sem hafi orðið fyrir svona nokkru, skilaboð um að það sé allt í lagi að vera sorgmæddur en þeir geti risið aftur upp og þá sé gott að opna sig og ræða málin.