Flestir kjörnir fulltrúar í Colorado ljúka vinnuviku sinni á því að fara heim í helgarfrí. Það gerir bæjarstjórinn í Aurora, Mike Coffman, hins vegar ekki. Hann nær í svefnpokann sinn og fer í gistiskýli fyrir heimilislausa, en það hefur hann gert alla föstudaga síðan í febrúar.
Mike Coffman er ekki heimilislaus, en þessi 71 árs bæjarstjóri telur það vera skyldu sína að sjá við hvernig aðstæður þessi jaðarsetti hópur býr, enda telur hann það bestu leiðina til að koma auga á leiðir til úrbóta. Coffman mætir með svefnpokann sinn í gistiskýli sem kallast Aurora Regional Navigation Campus, en þar eru beddar fyrir 600 einstaklinga sem glíma við heimilisleysi. Hann vaknar svo snemma á laugardagsmorgnum til að aðstoða starfsfólk gistiskýlisins við að bera fram morgunmat.
Coffman segist ekki gera þetta til að kaupa sér pólitísk stig. Hann gerir þetta til að meta hvort stefna Aurora í málefnum heimilislausra sé í raun og veru að hjálpa fólki.
„Þessi reynsla hefur gert mér kleift að skilja betur einstakar og flóknar áskoranir þessa hóps,“ sagði Coffman í færslu á Facebook. „Þetta hefur hjálpað mér að sjá hópinn út frá samkennd, sem einstaklinga frekar en að sjá þá í gegnum linsu fordæmingar eða fyrirlitningar.“
Heimilisleysi hefur verið að aukast í Colorado og er talið að fjölgað hafi í hópnum um rúmlega 90 prósent á árunum 2020 til 2024. Coffman gistir í gistiskýlinu til að sjá hvort stefnan í þeim bæ sem honum hefur verið treyst fyrir að leiða sé í alvörunni að veita raunverulegt skjól og raunhæfa kosti til að komast í betri aðstæður.
Coffman mætir í gistiskýlið alla föstudaga og eru aðrir gestir farnir að venjast honum. Þetta þykir bæjarstjóranum bæði mikilvægt og dýrmætt því það sé nauðsynlegt að hann njóti trausts meðal heimilislausra svo þeir geti treyst honum fyrir raunverulegum áskorunum sínum.
Gistiskýlið hóf rekstur sinn seint á síðasta ári og situr Coffman í stjórn þess. Tilgangur skýlisins er ekki aðeins að veita skjól, þar er boðið upp á fíkniráðgjöf, geðhjálp og vinnumarkaðsúrræði. Markmiðið er að koma gestum úr heimilisleysi yfir í öruggt húsnæði.
Bæjarstjórinn hefur bæði verið lofaður og gagnrýndur fyrir uppátækið. Gagnrýnendur benda á að ólíkt Coffman eigi heimilislausir í engin önnur hús að venda. Bæjarstjórinn eigi öruggt heimili sem bíður hans eftir dvölina í gistiskýlinu. Þar með geti hann aldrei fyllilega sett sig í spor þeirra sem búa við stöðuga óvissu. Coffman viðurkenndi sjálfur að hans aðstæður bjóði ekki upp á það að hann geti fyllilega upplifað hversu hörmulegt heimilisleysi er, en þetta veiti honum þó mikilvæga innsýn í málaflokkinn. Hann fái þarna að heyra hvernig gistiskýlið er að reynast þeim sem þar dvelja og hvar betur megi gera.
„Ég mun halda áfram að dvelja með þeim sem upplifa heimilisleysi, á hverjum föstudegi, þar til verkefnið er orðið allt sem ég tel það geta verið og að það verði fyrirmynd fyrir ekki bara Colorado heldur landið allt.“