Sjötugur karlmaður hefur höfðað 35 milljóna dollara mál gegn San Diego borg eftir að hafa dottið á gangstétt þann 11. maí síðastliðinn. Maðurinn slasaðist alvarlega, hlaut bak- og hálsbrot, og þarf læknisaðstoð allan sólarhringinn eftir fallið
Samkvæmt lögmanni mannsins, William M. Berman, datt skjólstæðingur hans þegar hann var með eiginkonu sinni á leiðinni til baka í bíl þeirra, sem lagður var við gangstétt í Mission Hills. Hjónin höfðu nýlega heimsótt sushi-veitingastað.
Öryggismyndavélar dýralæknastofu í nágrenninu náðu þeirri stundu þegar maðurinn datt. Á myndbandinu sést hann ganga að bílnum með staf og reka annan fótinn í festingu fyrir bílastæðamæli á gangstéttinni. Mælirinn mun hafa verið fjarlægður í fyrra, en festing hans ekki. Eftir að hafa hrasað féll maðurinn með höfuðið á bíl sinn og síðan á götuna.
Lögmaður mannsins segir um festingu mælisins: „Þær standa um það bileina til tvær tommur [2-5 sm] upp úr frá gangstéttinni. Borgin þarf að tryggja að þessi undirstöður séu fjarlægðar af gangstéttunum.“
Nú krefst Berman 35 milljóna dala í skaðabætur frá San Diego borg fyrir hönd skjólstæðings síns, þar sem mælistöðin var skilin eftir í „hættulegu ástandi“. Talið er að svipaðar hættur séu til staðar í öðrum hverfum í San Diego.
Eftir áfallið er maðurinn að jafna sig heima en þarfnast stöðugs lækniseftirlits.
Í viðtali við CBS 8 San Diego sagði Berman: „Skjólstæðingur minn vill að borgin haldi gangstéttum sínum í öruggu ástandi. Skjólstæðingur minn vill tryggja að borgin beri ábyrgð á viðhaldsáætlun sinni.“
Hann hélt áfram og sagði að borgin hefði borið því við að peningarnir til að viðhalda viðhaldi bílastæðamæla hefðu klárast og með því að gera það væru berar undirstöður hættulegar almenningi.
Aðrir íbúar í San Diego hafa lýst yfir áhyggjum af útstæðum bílastæðamælum. Laura Landisi, sem býr nálægt þar sem atvikið átti sér stað, sagði við NBC: „Eiginmaður minn notar göngugrind og gangstéttirnar eru ekki einu sinni jafnar vegna trjánna (rótanna).“ Eiginmaður hennar, Robert, bætti við: „Ef þú ert ekki að fylgjast með, þá keyrirðu hjólið beint í ójöfnu. Sem betur fer hef ég ekki dottið ennþá.“