Minnst átta búddistamunkar eru látnir í Taílandi og 26 aðrir særðir eftir svaðilför 11 ára drengs sem hafði tekið pallbifreið föður síns í leyfisleysi. Munkarnir 34 gengu í einfaldri röð meðfram veginum þegar bifreið af gerðinni Isuzu var ekið á þá í morgun. Minnst átta munkanna voru úrskurðaðir látnir á vettvangi og 14 aðrir voru færðir á gjörgæslu með alvarlega áverka. Aðrir sluppu með minniháttar áverka sem var gert að á vettvangi.
Drengurinn hefur verið færður í varðhald á meðan lögreglan leitaði aðstandenda hans. Að sögn taílenskra miðla hafði drengurinn tekið bifreiðina ófrjálsri hendi. Þegar amma drengsins uppgötvaði að bifreiðin var horfin hafði hún samband við lögreglu og greindi frá því að drengurinn glímdi við skerðingar. Síðan frétti hún af hörmulegum afleiðingum ökuferðarinnar.
Umferðarlögreglumaðurinn Therra Kaewnet kom fyrst að vettvangi slyssins og taldi fyrst að munkarnir væru að taka þátt í einhvers konar trúarathöfn þar sem þeir lágu við veginn. Þegar nær var komið var þó ljóst að hér hafði eitthvað hrottalegt átt sér stað.
Munkarnir voru í pílagrímsgöngu frá Nam Khun-héraðinu í Ubon Rathcathani að helgistað í Don Tan-héraðinu í Mukdahan. Höfðu þeir safnað ölmusu á leið sinni sem þeir báru með sér.
„Ég sá dreng á pallbifreið aka að okkur, síðan skyndilega var bifreiðinni ekið á okkur á fullri ferð,“ sagði einn munkanna eftir slysið. „Sem betur fer tókst mér og öðrum munk að stökkva í burtu í tæka tíð. Fyrstu níu munkarnir í röðinni lifðu af, en aðrir sem urðu fyrir bifreiðinni tókust á loft“