Bresk móðir hefur tjáð sig eftir að sjö ára gömul dóttir hennar fékk stórar blöðrur eftir að mjúkt leikfang hennar sprakk í höndum hennar.
René Barnard þurfti að flytja dóttur sína, Livi, á sjúkrahús eftir að innsigli rofnaði á leikfanginu hennar, sem sagt er vera frá NeeDoh og kosta um 17 dollara.
Móðirin segir dóttur sína elska leikfangið og að „allir krakkarnir væru að leika sér með það núna“. Sama gerðir dóttir hennar þennan örlagaríka dag eftir skóla. „Við komum heim og ég var að elda kvöldmat í eldhúsinu og dunda mér við vaskinn og hún var við eldhúsborðið og sagði bara: „Mamma, vökvinn er kominn út og hefur brennt hendina á mér,“ sagði René.
Móðirin segist ekki hafa hitað leikfangið - umdeild aðferð sem á að gera leikfangið mýkra og auðveldara að kreista og þegar hún skoðaði hendur Livi sá hún engar blöðrur. Hún setti eigi að síður hendur Livi undir kalt vatn í eldhúskrananum og gúgglaði til að athuga hvort vökvinn væri eitraður. „Hann var ekki eitraður svo ég hélt að þetta yrði allt í lagi,“ sagði René.
Livi sagði hins vegar að sig verkjaði í hvert sinn sem hún tók hendur sínar undan vatninu. René hringdi í hjálparsíma breska heilbrigðiskerfisins (NHS) og var ráðlagt að fara með Livi á sjúkrahús, en engin brunadeild var á staðnum þar sem hún var stödd.
„Þau tóku myndir og sendu þær á Barnaspítalann í Birmingham,“ útskýrði hún og benti á að Livi hefði þá fengið blöðrur. „Við vorum síðan beðin um að fara aftur daginn eftir svo þau gætu meðhöndlað sárin og nú þarf ég að fara með hana til læknis á hverjum degi til að láta skipta um umbúðir.“
René segir að í hitabylgjunni í Bretland sé gott að geyma svipuð leikföng í ísskápnum.
Atvikið er til rannsóknar hjá Bigjigs Toys, sem er einkadreifingaraðila NeeDoh í Bretlandi, en leikfangið er framleitt af bandaríska fyrirtækinu Schylling. „Við tökum öll mál eins og þetta mjög alvarlega en við vitum um fjölda falsaðra vara á markaðnum svo við verðum að ákvarða hvort þetta var raunverulegt NeeDoh.“