Rússneska parið, Angela Nikolau, 33 ára, og Ivan Beerkus, 32 ára, gerðu sér lítið fyrir í gær og klifraði upp á topp Empire State byggingarinnar, sem er 443 metrar á hæð, án öryggisbúnaðar, svartklædd með grímur og borða sem á stóð: „Þegar kraftur ástarinnar sigrar ást valdsins, þá þekkir heimurinn frið.“ (e. When the power of love beats the love of power the world knows peace.)
Textinn er tilvitnun í tónlistarmanninn Jimi Hendrix, en það var breski stjórnmálamaðurinn Williams Gladstone sem sagði þau fyrstur á 19. öld.
Beerkus ákvað svo að nýta ferðina og biðja sinnar heittelskuðu á litlum palli á toppi Empira State. Vitni sögðu að parið hefði verið þarna uppi í um 10 mínútur.
Parið var síðar handtekið fyrir athæfið og sitja þau í gæsluvarðhaldi. Lögreglan í New York greindi frá því í fréttatilkynningu að parið hefði verið handtekið. Hefur parið verið ákært í fjölmörgum liðum meðal annars fyrir innbrot, saknæma hegðun, og glæpsamlegt athæfi.
Atvikið hefur vakið upp spurningar um hvernig parið komst fram hjá ítarlegum öryggisreglum í byggingunni. Gestir í Empire State byggingunni eru undir ströngum skoðunum og hlutir eins og grímur stranglega bannaðir.
Talsmaður Empire State sagði að atvikið hefði ekki skapað hættu fyrir „leigjendur, gesti eða gesti á útsýnispallinum rétt fyrir neðan turninn“. „Áhersla skal lögð á að útsýnispallurinn í Empire State byggingunni, sem er ofan á frægustu byggingu heims í miðbæ New York borgar, býður upp á hagnýta leið fyrir eftirminnilegustu bónorðið.“ Talsmaðurinn neitaði að tjá sig um hvernig öryggisbrotið átti sér stað. Að sögn þurfti Empire State byggingin að slökkva á hátíðniútsendingum sínum á meðan á atvikinu stóð til að koma í veg fyrir að parið yrði fyrir hættulegum útvarpsbylgjum.
Nikolau hefur þegar byrjað að deila myndskeiðum og myndum af trúlofuninni á samfélagsmiðlum sínum, þar sem hún sýnir trúlofunarhring með útsýni yfir New York borgí bakgrunni.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem parið er í sviðsljósinu, því þau koma fram í heimildarmyndinni Skywalkers: A Love Story frá árinu 2024, sem hægt er að horfa á á Netflix.