Pressan

Búa á skemmtiferðaskipi allt árið: „Þetta segir enginn þér um lífið á sjónum“

Mynd

Hjón sem búa á skemmtiferðaskipi allt árið hafa deilt ráðum sínum um lífið úti á sjó, þar á meðal þeim hlutum sem fólk segir venjulega ekki frá.

Lanette Canen og Johan Bodin hafa búið á skemmtiferðaskipi í tvö ár og hafa síðan aðlagað líf sitt þannig að það að búa um borð í skipinu er orðið þeirra nýja norm. Hjónin keyptu káetu á skemmtiferðaskipinu Villa Vie Odyssey og yfirgáfu líf sitt á Hawaii um leið.

Samkvæmt vefsíðu Villa Vie Residences er verð fyrir káetu um borð 99.999 dollarar fyrir fullt eignarhald (sem gildir í 15 ár) eða 59.999 dollarar fyrir fimm ára leigusamning. Dýrasta herbergið, Villa Suite, kostar 439.999 dollara fyrir fullt eignarhald.

Þótt þau hafi aðeins verið á Villa Vie Odyssey í tvö ár eru hjónin orðnir miklir ferðasérfræðingar og skrásetja líf sitt á YouTube-rásinni sinni, Living Life on a Cruise.

Í einu af myndböndum þeirra segja þau frá hlutum sem enginn segir manni um búsetu á skemmtiferðaskipi.

Í fyrsta lagi breytast tímasetningar úr hefðbundnum tíma í hafnardaga og sjódaga.

„Nánast allir hinir dagarnir virðast renna saman,“ sagði Johan. Lanette bætti við að fyrstu sex mánuðina á sjó hafi hún reynt að fylgja tímaáætlun Bandaríkjanna, en nú „veit hún ekki einu sinni hvaða dagur er“. „Þetta er í raun undarlegt fyrirbæri,“ hélt Johan áfram.

Hjónin ræða einnig alþjóðlegu daglínuna (IDL). „Þegar þú ferð yfir daglínuna verður þú eins konar tímaflakkari! Farðu til vesturs og það er einum degi síðar; farðu til baka og þú ert kominn aftur í tímann.“

Þegar Johan ræddi þetta sagði hann: „Einn daginn endurupplifðum við sama daginn. Við höfðum, eins og, mánudaginn 15. febrúar tvo daga í röð.“

Þegar þau ferðast milli landa breytast tímarnir líka, svo hjónin þurfa að fylgjast með því. Þau segja að greinilega gangi áhafnarmeðlimur skipsins um og breytir klukkunum klukkan þrjú að nóttu.

 

Hjónin hafa einnig fyllt næstum allar síður vegabréfa sinna, vandamál sem margir væru örugglega til í að standa í. Margir staðir stimpla vegabréfið þitt þegar þú kemur til og frá landinu.

„Ég á fimm síður eftir, svo ég þurfti í raun að fara af skipinu í Sydney og fara á ræðismannsskrifstofuna til að fá nýtt vegabréf,“ sagði Lanette. Hefði hún klárað auðu síðurnar hefði Lanette ekki getað ferðast til útlanda lengur. Johan bætti við að sum lönd væru stimpilglöð þegar kæmi að vegabréfum og í sumum tilfellum, ef þú færð vegabréfsáritun, þá tæki það heila síðu.

Annað sem var á listanum þeirra var að muna að aka hægra megin á veginum. Auðvitað er ekið vinstra megin í sumum Evrópulöndum eins og Englandi, sem verður nýtt fyrir bandarísku hjónin sem eru vön að aka hægra megin. „Að aka hinu megini á veginum er bara orðið eðlilegt núna,“ sagði Lanette.