Fyrrum Fox-stjarnan Tucker Carlson er ekki bara hættur að styðja Donald Trump því hann hefur nú gefið Repúblikanaflokkinn upp á bátinn.
„Ég vil ekki styðja Repúblikanaflokkinn. Það er engin möguleiki á að ég muni styðja flokkinn,“ sagði hann að sögn Axios.
Hann sleit öll tengsl við Trump í vor og hefur lýst því yfir að hann sjái eftir að hafa stutt hann.
Það er aðallega stríðið við Íran sem gerði út af við vináttu þessara fyrrum bandamanna.
„Hvernig á ég eða einhver bandarískur kjósandi að geta stutt flokk sem er Bandaríkjunum ekki trúr og tekur hagsmuni annars lands fram yfir eigin landsmenn?“ spurði hann og svaraði síðan: „Það er ekki hægt að kjósa svona fólk. Það ætla ég ekki að gera.“
Það er Ísrael sem hann vísar til og kyndir þar með undir hugmyndir um að Bandaríkin hafi verið „blekkt“ af Ísrael til að gera árás á Íran.
Carlson sagði að stjórnmálamenn úr röðum Repúblikana hafi „svikið“ kjósendur með því að styðja stríðið og þar með tekið ísraelska öryggishagsmuni fram yfir Bandaríkin.
Að endingu sagðist hann telja að skilnaður hans við Repúblikanaflokkinn geti haft umfangsmikil áhrif: „Ef ég er hættur, þá held ég að margir aðrir muni einnig hætta.“