Þegar sólin stendur hátt á himni finna margir fyrir því heima í stofu, sérstaklega ef gluggarnir eru stórir. Þá breytast stofan og íbúðin eiginlega í gróðurhús vegna áhrifa sólargeislanna.
Fáir eru með loftkælingar hér á landi og því þarf stundum að leita annarra lausna til að kæla íbúðina niður.
Það eru til gamlar aðferðir sem koma að góðu gagni og geta hjálpað til við að koma í veg fyrir að stofan, svefnherbergið eða restin af heimilinu verði mjög heitt. Planeta skýrir frá þessu.
Besta aðferðin er auðvitað að halda sólargeislunum úti. Það er hægt að gera með því að hafa dregið fyrir allan daginn. Einnig er gott að hafa alla glugga lokaða til að hitinn komist ekki inn. Síðan er gott ráð að slökkva á öllum þeim rafmagnstækjum sem gefa frá sér ónauðsynlegan hita.
Í Suður-Evrópu notar fólk sérstaka aðferð þegar mjög heitt er. Það setur ílát með vatni í, til dæmis plastflösku, í gluggakistuna til að halda hitanum niðri.
Vatn getur dregið mikinn hita í sig og dregur hitann frá sólargeislunum hægt og rólega í sig. Þetta hægir á hlýnun rýmisins, sem ílátið er í, og tryggir jafnara hitastig allan daginn.
Þetta einfalda ráð kemur auðvitað ekki í staðinn fyrir góða loftkælingu en það gerir samt sem áður gagn.